Fara í efni
Íþróttir

Sært dýr er helvíti hættulegt dýr

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs þakkar KA-mönnum fyrir leikinn í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs sagði við akureyri.net eftir ósigurinn gegn KA, 3-0, í Bestu deild karla í fótbolta á Brekkunni í kvöld að fyrsta markið um miðjan seinni hálfleik hefði slegið sitt lið út af laginu.

„Við komum mjög góðir inn í seinni hálfleikinn og vorum gjörsamlega ofan á í leiknum þegar þeir náðu þessu fyrsta marki og það var mikið högg. Við náðum ekki að koma til baka – þeir fengu annað mjög pirrandi mark skömmu seinna sem sló okkur ennþá meira út af laginu. Við náðum ekki að þrýsta nægilega mikið á þá, fengum samt fullt af tækifærum til þess, hátt í tuttugu horn eða eitthvað. Við vorum endalaust að reyna en þetta datt einhvern veginn ekki fyrir okkur.

Okkur vantaði að skapa okkur opnari færi, þeir lokuðu því vel, og það voru alltof mörg augnablik upp úr þessum hornum og fyrirgjöfum þar sem boltinn var skoppandi um í vítateignum hjá þeim en við náðum ekki að ráðast á hann og skora mörk,“ sagði Sigurður Heiðar.

Setur bara blóð á tennurnar

Nú farið þið inn í þetta langa landsleikjahlé í fallsæti og tveimur stigum á eftir KA, í stað þess að vera fjórum stigum á undan. Það hlýtur að vera erfið staða.

„Nei, nei, það setur bara blóð á tennurnar á okkur. Við tökum þetta tap og látum það særa okkur svolítið. Sært dýr er helvíti hættulegt dýr! Við eigum tvo heimaleiki fram undan á meðan þeir eiga tvo erfiða útileiki, og við hjólum dýrvitlausir í þetta eftir hléið.“

Fengum frábæran stuðning

Þórsarar létu vel í sér heyra á leiknum í kvöld, þú ert væntanlega ánægður með stuðninginn.

„Já við fengum frábæran stuðning og mér fannst þetta vera að snúast okkur í hag í seinni hálfleiknum. Stemningin var með okkur á vellinum og þrýstum heilmikið á þá. Okkur tókst ekki að skora en þeir gerðu það. En við höldum áfram, við erum aðeins særðir núna en gefum allt í leikina sem framundan eru,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson.