Fara í efni
Íþróttir

Þýðingarmikill sigur hjá Þór/KA gegn Val

Margrét Árnadóttir tryggði Þór/KA þrjú mikilvæg stig í dag þegar hún skoraði sigurmark Þórs/KA gegn Val. Mynd: Ármann Hinrik

Þór/KA vann í dag gríðarlega þýðingarmikinn sigur á Val á útivelli í fyrstu umferð úrslitakeppni neðri hluta efstu deildar í knattspyrnu, Bestu deildinni. Margrét Árnadóttir skoraði eina mark leiksins í 1:0 sigri sem lyfti Þór/KA af botni deildarinnar upp fyrir bæði Val og Víking.

Eftir fyrstu umferðina af þremur er staðan í neðri hlutanum þannig að Fram hefur 23 stig, Þór/KA 22 stig, Víkingur 21 stig og Valur 20 stig.

Liðin fjögur sem berjast í neðri hluta úrslitakeppninnar þurfa því á hverju stigi að halda sem þau mögulega geta krækt í, til að forðast fall úr deildinni. Fá stig skilja liðin að og hver einasti leikur er úrslitaleikur. Enda bar viðureignin í dag merki um mikilvægið og greinilegt að hvorugt liðið vildi tapa leiknum. Þetta var frekar lokaður baráttuleikur lengst af, þar sem Þór/KA varðist frábærlega, átti í heildina hættulegri færi, nýtti eitt þeirra og lagaði þar með stöðu sína töluvert.

Fyrri hálfleikur markalaus

Þór/KA byrjaði betur í dag, þær voru meira með boltann og ákveðnari. Strax á 8. mínútu átti Margrét Árnadóttir fyrirgjöf frá hægri sem hafnaði í innanverðri fjærstönginni og mínútu síðar fékk Hildur Anna Birgisdóttir boltann í góðu færi í miðjum vítateig Vals. Hún lagði knöttinn fyrir og átti þrumuskot að marki en boltinn fór beint í Tinnu Brá Magnúsdóttur í Valsmarkinu. Eftir um hálftíma leik átti Arna Sif Ásgrímsdóttir skalla að marki eftir hornspyrnu og varnarmaður Vals hreinsaði frá af marklínu. Eina færi Vals í fyrri hálfleik sem eitthvað kvað að var þegar hornspyrna Ísabellu Söru Tryggvadóttur á 41. mínútu sveif yfir allan teiginn og hafnaði loks í stönginni fjær. Valskonur voru þarna búnar að ná áttum og fengu nokkrar hornspyrnur á skömmum tíma sem þær náðu ekki að gera sér mat úr.

Seinni hálfleikurinn var framan af ennþá lokaðri en sá fyrri og einkenndist af mikilli stöðubaráttu. Á 63. mínútu kom markið sem réði úrslitum í leiknum. Hildur Anna tók hornspyrnu frá vinstri og boltinn barst til Huldu Óskar Jónsdóttur hægra megin í teignum sem skilaði honum aftur fyrir markið. Þar var talsvert klafs á markteignum en Margrét Árnadóttir var ákveðnust og tókst að pota boltanum inn í markið. Vel af sér vikið hjá Margréti, sem spilaði í framlínunni í fjarveru Erin Flurey sem var í leikbanni.

Eins og svo oft í sumar var fyrirliðinn Arna Sif Ásgrímsdóttir sem klettur í vörn Þórs/KA. Mynd: Ármann Hinrik

Eftir markið opnaðist leikurinn meira og Valsarar sóttu talsvert síðasta hálftímann en Þór/KA varðist vel, eins og liðið hefur reyndar gert mjög vel undanfarnar vikur. Arna Sif kemur flestum boltum í burtu og það sem nær að markinu sér Alessandra Augur í markinu um. Allie átti flottan leik í dag og bjargaði oft vel. Sóknir Vals báru engan árangur, leiktíminn rann út og Þór/KA fagnaði mikilvægum sigri sem lyfti liðinu úr botnsætinu. Áfram heldur þó baráttan og enn eru tvær umferðir eftir.

Þór/KA tekur næst á móti Fram og fer leikurinn fram í Þorpinu næstkomandi föstudagskvöld. Á sama tíma leikur Valur gegn Víkingi. Í lokaumferðinni sækir Þór/KA Víking heim og Fram og Valur etja kappi. Sú umferð fer fram föstudagskvöldið 2. október.

Þór/KA: Alessandra Dorothy Augur – María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Angela Mary Helgadóttir (Halla Bríet Kristjánsdóttir 74.) – Hulda Ósk Jónsdóttir (Amalía Árnadóttir 65.), Elizabeth Moore, Karen María Sigurgeirsdóttir (Birgitta Rún Finnbogadóttir 84.), Hildur Anna Birgisdóttir (Agnes Birta Stefánsdóttir 84.), Lauren Adrienne Lapomarda – Margrét Árnadóttir.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í úrslitakeppni neðri hluta deildarinnar