Ranglát niðurröðun og misheppnuð tilraun
Haraldur Ingólfsson, sjálfboðaliði hjá knattspyrnuliði Þórs/KA, lýsti þeirri skoðun sinni í grein sem birtist á akureyri.net í morgun að niðurröðun leikja í síðustu umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu fyrir tvískiptingu deildarinnar væri hrein og klár niðurlæging fyrir deildina, félögin og knattspyrnukonurnar.
Í greininni bendir Haraldur á ranglætið í því að leikjum umferðarinnar skyldi dreift á þrjá daga og að skv. reglugerð KSÍ hefðu lið sem börðust um það að vera í efri hluta deildarinnar (sex efstu) átt að spila á sama tíma. „Ræður virðingarleysi fyrir eigin reglum niðurröðun leikja í Bestu deildum kvenna og karla í knattspyrnu?“ spyr hann.
Hafði afgerandi áhrif
Haraldur segir að mismunandi tímasetningar hafi haft afgerandi áhrif á það hvernig þjálfarar Grindavíkur/Njarðvíkur og Þróttar hafi getað nálgast sína leiki eftir að ljóst varð að Þór/KA hafði tapað fyrir FH því þá voru bæði þessi lið örugg með sæti í efri hlutanum. Ofan á það bætist svo að pressulaust lið Grindavíkur/Njarðvíkur mætti Val síðdegis á sunnudag, eftir að leik Þórs/KA og FH var lokið, og tapaði 1-4. Valur var í neðsta sæti deildarinnar fyrir þessa umferð og náði sér í þrjú dýrmæt stig, færðist upp í 8. sætið. Haraldur spyr: „Hefðu þau þrjú stig orðið torsóttari ef allir leikir hefðu farið fram á sama tíma og Grindavík/Njarðvík mætt í leikinn án þess að eiga öruggt sæti í efri hlutanum?“
Misheppnuð tilraun
Í greininni fjallar Haraldur einnig um fyrirkomulagið Bestu deildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins. „Tvískipting Bestu deildanna er misheppnuð tilraun,“ segir hann. Best sé að viðurkenna að hún virki ekki, „viðurkenna að gallarnir eru of margir, og spila deildirnar með tvöfaldri umferð. Kröfum um leikjafjölda er auðvelt að svara með fjölgun liða í deildum, ef svo ber undir.“
Áhugavert er að Jóhann Kristinn Gunnarsson, fyrrverandi þjálfari Þórs/KA sem nú er við stjórnvölinn hjá Þrótti í Reykjavík, birti grein á Facebook síðu sinni í dag þar sem hann fjallar m.a. um keppnisfyrirkomulagið á sömu nótum.
„Hvað er að stoppa að liðum í efstu deild kvenna sé fjölgað í tólf? Þarf að fara með tillögu á ársþing KSÍ til að það sé gert? Eru einhverjir á móti því í raun og veru? Lengjudeildin er hörkudeild og miðað við þau félög sem eru að berjast um að komast upp þar í ár þá ætti nú ekki að vera mikið mál að gera þetta bara strax,“ skrifar Jóhann.
- Grein Haraldar á akureyri.net í morgun: Gerum betur!