Fara í efni
Minningargreinar

Páll Halldór Jónsson

Elsku afi, þú varst mér einstaklega kær og áttir stóran þátt í æsku minni. Ég dvaldi svo mikið hjá þér og ömmu þegar ég var lítil og hjá ykkur var alltaf gott að vera.

Ég á margar hlýjar minningar frá samverustundum okkar. Þú kenndir mér að tefla, þú kenndir mér að spila og við spiluðum ósjaldan Manna við eldhúsborðið með ömmu.

Ein af mínum uppáhalds minningum er að dansa með ykkur ömmu á stofugólfinu í Áshlíðinni, horfa á ykkur dansa saman og læra af ykkur hina ýmsu dansa.

Ferðirnar í berjamó voru margar, þá tókum við oft með okkur nesti, hlustuðum á kaffibrúsakarlana í bílnum á leiðinni og hlógum mikið.

Á sunnudagsmorgnum beið ég svo spennt eftir því að þið amma kæmuð að sækja mig, því þá fórum við í sunnudagaskólann.

Takk fyrir allt sem þú varst mér og allt sem þú kenndir mér.

Minning þín lifir áfram í hjarta mínu.

Hvíldu í friði elsku afi minn.

Arna Dögg Arnarsdóttir

Halldór Hallgrímsson skipstjóri

Sigfús Ólafur Biering Helgason skrifar
28. ágúst 2026 | kl. 08:00

Halldór Hallgrímsson – lífshlaupið

28. ágúst 2026 | kl. 08:00

Elías Þorsteinsson

Jóhann Hauksson skrifar
11. ágúst 2026 | kl. 06:00

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Björgunarsveitin Týr skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 14:30

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Jón Birgir Guðmundsson skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 11:00

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Guðný Bára Jónsdóttir skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 06:00