Orri Páll kveður með 75. Orrablótinu
Akureyringurinn Orri Páll Ormarsson, hinn orðsnjalli blaðamaður á Morgunblaðinu, hefur skrifað pistla – Orrablót – fyrir akureyri.net annan hvern föstudag síðan í nóvember 2023. Frábærir pistlar hans hafa mjög glatt fjölda lesenda en nú er komið að kveðjustund. Síðasti pistill „Maradona lyklaborðsins,“ eins og vinir hans kalla Orra Páll, birtist í dag.
Orri Páll rifjar upp í pistlinum að þegar ofanritaður spurði hvort til greina kæmi að hann skrifaði reglulega Akureyrarskotna pistla inn á vefmiðilinn hafi hann aðeins þurft að hugsa málið. „Jæja, hugsaði ég með mér, ég hlýt nú að geta slitið út úr mér 10, jafnvel 15 pistla fyrir minn gamla vin og Þórsara. Þessi er númer 75!“ skrifar hann.
„En nú er brunnurinn loksins tæmdur. Það get ég nokkurn veginn fullvissað ykkur um. Auðvitað gerðist fleira í gamla daga en það er varla í frásögur færandi. Ekki fer ég til dæmis að segja ykkur frá því þegar ég ...“
Síðasta blótið kallar Orri Takk fyrir mig, Akureyri! Ritstjóri akureyri.net þakkar á móti fyrir mikilvægt framlag og stórskemmtilegt og segir, fyrir hönd fjölmargra lesenda sem hafa haft samband á þessum þremur og lýst ómældri ánægju með skrifin: Takk fyrir okkur, Orri Páll!
Orrablót dagsins – kveðjublót Orra Páls: Takk fyrir mig, Akureyri!