Fara í efni
Fréttir

Opinn fundur í dag um vestnorrænt samstarf

Norræna félagið á Norðurlandi býður til opins fundar í Amtsbókasafninu á Akureyri í dag, miðvikudaginn 2. september kl. 17:00.

Á fundinum mun Jón Gnarr, formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, segja frá starfi Vestnorræna ráðsins og þeim málum sem efst eru á baugi í vestnorrænu samstarfi, að því er fram kemur í tilkynningu.

Að erindi loknu verða spurningar og umræður. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Boðið verður upp á kaffi og kruðerí.

Viðbót - Fleiri hafa boðað komu sína á fundinn. Auk Jóns Gnarr verða allir þingmenn Íslandsdeildarinnar á staðnum; þau Ingibjörg Davíðsdóttir, Jens Garðar Helgason, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Sigurjón Þórðarson og Jón Gunnarsson. Ritari Íslandsdeildar, Hildur Edwald og framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, Lárus Valgarðsson munu einnig mæta.