Óli P. Olsen og fyrsti heimaleikur KA í 1. deild
GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 115
Akureyrarfélögin tefldu fram sameiginlegu knattspyrnuliði í nafni Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) í áratugi en hófu að leika undir eigin merkjum sumarið 1975, eftir að ÍBA féll úr efstu deild haustið áður. KA lék í fyrsta skipti eftir það í 1. deild – efstu deild Íslandsmótsins – sumarið 1978 og meðfylgjandi mynd er tekin í fyrsta heimaleiknum, þegar ÍBV kom í heimsókn 18. júní.
Dómari þessa fyrsta heimaleiks KA í efstu deild var Óli P. Olsen, einn kunnasti fótbolta- og handboltadómari landsins í áratugi. Óli P. sem dæmdi fyrir Þrótt í Reykjavík, lést fyrr í þessum mánuði. Hann var eftirminnilegur maður og upplagt að nota tækifærið og birta þessa mynd núna.
Þarna liggur KA-maðurinn Eyjólfur Ágústsson meiddur, yfir honum standa liðsfélagi hans, Guðjón Harðarson og Óli P. Olsen dómari, og til hægri er Helgi Jónsson, leikmaður KA. Aftan við Guðjón er KA-maðurinn Haraldur Haraldsson, Gunnar Gíslason, einnig leikmaður KA, er við stöngina og aftan við Óla dómara er Eyjamaðurinn Sigurlás Þorleifsson. Í fjarska er KA-maðurinn Ármann Sverrisson og lengst til hægri er Friðfinnur Finnbogason, leikmaður ÍBV.