Fréttir
Nýi Blóðbankabíllinn kominn til Akureyrar
19.05.2026 kl. 13:00
Starfsfólk Blóðbankans á Akureyri við Björgu, nýja blóðgjafabílinn á Akureyri. Stefán Rafn Stefánsson, Hrafnhildur Jónsdóttir og Hanna Vigdís Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingar hjá Blóðbankanum munu rúnta um Norðurland og hitta blóðgjafa þar sem þá er að finna. Mynd: SNÆ
Blóðbankinn hefur tekið nýjan bíl í notkun sem staðsettur verður á Akureyri. Með bílnum getur starfsfólk Blóðbankans farið í reglulegar ferðir um Akureyri og til nágrannasveitarfélaga og hitt blóðgjafa í þeirra heimabyggð.
Eins og akureyri.net greindi frá í febrúar stóð Blóðbankinn fyrir samkeppni um nafn á bílinn. Í dag var bíllinn svo formlega vígður og nýja nafnið tilkynnt. Alls bárust 400 tillögur í samkeppnina og bar nafnið Björg sigur úr býtum enda þykir það hæfa bílnum mjög vel. Sex einstaklingar sendu inn þetta nafn og var vinningshafi dreginn úr þeirra hópi, Unnur Ása Atladóttir.

Bíllinn er mjög rúmgóður að innan. Sérrými er fyrir viðtöl og annað rými fyrir blóðtökuna. Hjúkrunarfræðingurinn Hanna Vigdís undirbýr hér blóðgjöf hjá fyrsta blóðgjafa bílsins, Þórleifi Stefáni Björnssyni, en Hanna fór í gær suður og sótti bílinn. Mynd: SNÆ
Bílinn ekki háður utanaðkomandi rafmagni
Samkvæmt upplýsingum frá Blóðbankanum er bíllinn hannaður með sjálfbærni, sveigjanleika og aukið aðgengi að leiðarljósi. Hann nýtir meðal annars eigin raforku með sólarsellum og er því ekki háður rafmagnstengingu á söfnunarstað. Með þessu skapast auknir möguleikar til blóðsöfnunar víðs vegar um landið og þjónustan verður aðgengilegri fyrir blóðgjafa, óháð staðsetningu. Helstu áskoranir Blóðbankans snúa meðal annars að því að tryggja nægilegan fjölda blóðgjafa. Með auknu aðgengi, markvissri kynningu og sýnilegri þjónustu er vonast til þess að fleiri sjái sér fært að leggja sitt af mörkum með blóðgjöf. Innleiðing Bjargar markar því mikilvægt skref í áframhaldandi þróun þjónustu við blóðgjafa og eykur bæði sveigjanleika og öryggi í blóðsöfnun á landsvísu. Fyrstu verkefni Bjargar verða ferðir innanbæjar á Akureyri en ferðir bílsins verða kynntar á Facebooksíðu Blóðbankans á Glerártorgi.

Tveir blóðgjafar geta gefið blóð í einu í bílnum. Vinnslusvæði bílsins var hannað og smíðað hjá fyrirtækinu Bílaklæðningar eftir forskrift Blóðbankans. Mynd: SNÆ

Bílinn var formlega vígður við Glerártorg í dag. Hér tekur Unnur Ása við verðlaunum fyrir nafngiftina úr hendi Hólmars Svanssonar frá Blóðgjafafélaginu. Á myndinni er einnig starfsfólk Blóðbankans á Akureyri og Björn Rúnar Lúðvíksson, framkvæmdastjóri klínískra rannsókna og stoðþjónustu hjá Landspítalanum. Mynd: SNÆ