Fara í efni
Fréttir

Áttu verðlaunanafn á blóðsöfnunarbílinn?

Leitað er að góðu nafni sem tengist Norðurlandi á blóðsöfnunarbílinn sem er að koma norður með fast aðsetur á Akureyri.

Blóðbankinn á Akureyri mun í vor taka í notkun nýjan blóðsöfnunarbíl sem mun gjörbreyta þjónustunni á Norðurlandi. Með bílnum verður hægt að fara í reglulegar ferðir frá Akureyri til nágrannasveitarfélaga og hitta blóðgjafa í þeirra heimabyggð. Efnt verður til nafnasamkeppni, sem hefst á morgun, þar sem almenningi gefst kostur á að leggja til nafn á bílinn. 

„Þetta eykur þjónustustigið verulega,“ segir Hanna Vigdís Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Blóðbankanum á Akureyri um nýja bílinn. „Í dag er fólk oft að keyra klukkutíma frá Húsavík eða Sauðárkróki til að gefa blóð hér á Akureyri en með bílnum getum við farið meira til þeirra.“

Það er alltaf þörf fyrir blóð í Blóðbankanum. Á Akureyri taka þau Hrafnhildur Jónsdóttir, Stefán Rafn Stefánsson og Hanna Vigdís Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingar vel á móti blóðgjöfum. Fljótlega munu þau svo reglulega fara á rúntinn á nýjum blóðsöfnunarbíl um Norðurland og hitta blóðgjafa í sinni heimabyggð. 

Bíll sérhannaður fyrir blóðsöfnun á Norðurlandi

Hingað til hefur stór blóðsöfnunarbíll komið norður tvisvar á ári og farið á staði á borð við Húsavík, Dalvík og Sauðárkrók. Nú fær Blóðbankinn hins vegar glænýjan minni bíl sem verður staðsettur á Akureyri. Bíllinn verður búinn tveimur blóðgjafastólum og sérstaklega hannaður fyrir starfsemina, meðal annars með það að markmiði að hægt sé að sinna ferðum yfir vetrartímann. Reiknað er með að bíllinn komi til Akureyrar í apríl. Allt starfsfólk Blóðbankans á Akureyri mun geta ekið honum og ferðaáætlun verður kynnt þegar nær dregur. Ferðirnar verða líklega einu sinni í mánuði eða á tveggja mánaða fresti, eftir staðsetningum.

Leitað að nafni á bílinn

Í tengslum við komu bílsins verður efnt til nafnasamkeppni, þar sem almenningi gefst kostur á að leggja til nafn á bílinn. Nafnið á að endurspegla Norðurland í heild, þar sem bíllinn mun þjóna öllum fjórðungnum. Samkeppnin hefst á morgun, 11. febrúar og stendur í tvær vikur og verða góð verðlaun í boði.

  • Hér má senda inn tillögur að nafni á bílinn.

„Þetta er líka leið til að kynna bílinn og starfsemina,“ segir Hanna Vigdís sem er þess fullviss að þegar fólk sér bílinn kviknar oft áhugi og fleiri koma í blóðgjöf. „Þá getum við líka keyrt innanbæjar ogheimsótt fyrirtæki og stofnanir þar sem starfsmenn vilja gefa blóð. Fyrirtækjum er alltaf velkomið að setja sig í samband við okkur.“ 

Blóðgjöfum hefur fækkað

Þessi aukna þjónusta kemur á mikilvægum tíma því blóðgjöfum hefur fækkað á landsvísu. Samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum ættu um 3,2% landsmanna að vera blóðgjafar en hlutfallið á Íslandi er nú komið niður í um 2,3%. „Okkur vantar alltaf blóð,“ segir Hanna Vigdís. „Blóð er nauðsynlegt fyrir daglegan rekstur heilbrigðiskerfisins; fyrir aðgerðir, sjúkdóma og barnsfæðingar. Þetta er ekki bara eitthvað sem tengist stórum slysum, heldur er stöðug þörf fyrir blóð.“  Hún bendir jafnframt á að þjóðin sé að eldast og því þurfi stöðugt nýja blóðgjafa til að taka við af þeim sem detta út af gjafaskrá.


Það er alltaf þörf fyrir blóð í Blóðbankanum. Verkefnin þar eru þó fleiri en blóðsöfnun. Undanfarið ár hefur t.d. staðið yfir vinna við að setja upplýsingar um heilsufarsskilyrði blóðgjafa inn á island.is. Fólk getur þá sjálft flett upp lyfjum og sjúkdómum og séð hvort og hvenær það megi gefa blóð. Stefnt er að því að þessi þjónusta verði aðgengileg fyrir vorið. 

Gagnagrunnur í vinnslu og flutningar framundan

Hanna Vigdís segir algengt að fólk haldi að það geti ekki gefið blóð en skilyrðin hafi verið rýmkuð á undanförnum árum. Blóðgjafar þurfa að vera á aldrinum 18 til 65 ára (allt að 71 árs ef þeir hafa verið reglulegir gjafar), yfir 50 kíló og almennt heilsuhraustir. Þá geta margir sem taka lyf geta einnig gefið blóð. „Fólk heldur oft að þetta sé flóknara en raun ber vitni. Skrefið er að koma í blóðprufu sem sker úr um hvort þú getir verið blóðgjafi er yfirleitt auðvelt en blóðgjöfin sjálf hræðir marga. Þegar fólk hefur hins vegar prófað einu sinni upplifir það oft að þetta sé miklu einfaldara en það hélt.“

Starfsfólk Blóðbankans á Akureyri hefur undanfarið ár einnig verið að vinna að því að setja upplýsingar um heilsufarsskilyrði blóðgjafa inn á island.is. Þar er stefnan að fólk geti sjálft flett upp lyfjum og sjúkdómum og séð hvort og hvenær það megi gefa blóð. Stefnt er að því að þessi þjónusta verði aðgengileg fyrir vorið. „Þetta mun einfalda ferlið bæði fyrir okkur og blóðgjafana,“ segir Hanna Vigdís. Þá er fleira fréttnæmt að gerast hjá Blóðbankanum á Glerártorgi því bankinn stefnir á flutninga innanhúss á árinu eða um leið og rýmið fyrir ofan Blush verður tilbúið fyrir starfssemi Blóðbankans. Með flutningunum fær starfsemin enn rýmra pláss.