Ný rannsóknastofa gegnir lykilhlutverki
Erfða- og líftæknifyrirtækið Arctic Therapeutics hefur formlega opnað nýja rannsóknastofu á Akureyri sem uppfyllir ítrustu kröfur klínískra rannsókna. Rannsóknastofan er, eftir því sem best er vitað, eina einkarekna klínískt vottaða rannsóknastofa landsins og markar stórt skref í uppbyggingu Arctic Therapeutics á sviði lífvísinda og heilbrigðistækni á Norðurlandi.
Umfangsmikil lyfjaþróun og framleiðsla
Akureyringurinn Hákon Hákonarson, forstjóri erfðarannsóknamiðstöðvar Barnaháskólasjúkrahússins í Fíladelfíu í Bandaríkjunum, stofnaði Arctic Therapeutics fyrir áratug, stefnt er umfangsmikilli lyfjaþróun og framleiðslu og þegar eru fimm lyf í þróun hjá fyrirtækinu.
„Þessi rannsóknastofa uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru til klínískra rannsókna og gegnir lykilhlutverki í lyfjaþróun okkar. Hún mun nýtast bæði við undirbúning og framkvæmd rannsókna, auk sértækra prófa og framleiðslu mikilvægra stoðgagna,“ sagði Ívar Hákonarson, sonur stofnandans og framkvæmdastjóri Arctic Therapeutics, í ávarpi þegar opnun rannsóknarstofunnar var fagnað með viðburði í Messanum hjá DriftEA, þar sem saman komu fulltrúar nýsköpunarumhverfisins, samstarfsaðilar og velunnarar félagsins.

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, starfsmaður Arctic Therapeutics, segir frá starfseminni sem mun fara fram á nýju rannsóknastofunni á Akureyri.
Akureyri veitir forskot
Þegar Ívar kynnti starfsemi félagsins, framtíðarsýn og mikilvægi þess að efla rannsóknastarf á Akureyri, lagði hann áherslu á að höfuðstöðvar Arctic Therapeutics yrðu áfram á Akureyri, ekki aðeins af tilfinningalegum ástæðum, heldur vegna þess forskots sem svæðið veitir. Hann nefndi þar öflugan mannauð, einstakan samstarfsanda og nálægð við lykilstofnanir á borð við Sjúkrahúsið á Akureyri og Háskólann á Akureyri, auk náins samstarfs við fyrirtæki eins og Pharmarctica á Grenivík. Ívar þakkaði sérstaklega Kaldbaki og DriftEA fyrir stuðning og samstarf, en Kaldbakur er meðal leiðandi fjárfesta.

Hákon Hákonarson, stofnandi Arctic Therapeutics, þegar opnun rannsóknastofunnar var fagnað í Messanum í DriftEA.
Erfðafræðilega upplýst lyfjaþróun
Hákon Hákonarson fjallaði í ræðu sinni um rannsókna- og þróunarstarf félagsins og þau tækifæri sem felast í erfðafræðilega upplýstri lyfjaþróun. Arctic Therapeutics er sprottið upp úr Center for Applied Genomics (CAG) við Barnaháskólasjúkrahúsið í Fíladelfíu, sem Hákon stofnaði og hefur byggt upp í eina stærstu mannerfðarannsóknarmiðstöð heims.
„Við erum með fimm lyf í þróun, öll byggð á erfðafræðilegum uppgötvunum sem miða að því að leiðrétta undirliggjandi orsakir sjúkdóma,“ sagði Hákon. Fyrsta lyfið er gegn afar sjaldgæfum íslensku arfgengum sjúkdómi sem veldur heilablæðingum og heilabilun á unga aldri.
- Fjallað var um sjúkdóminn og umrætt lyf í frétt sem birtist á akureyri.net í apríl árið 2021 – sjá hér: Stefnir að 100 störfum við lyfjaþróun.
Fram kom á kynningunni að félagið sjái tækifæri í þróun lausna á sviði fyrirbyggjandi heilbrigðisþjónustu, snemmgreiningar krabbameina og annarra sjúkdóma, meðal annars í samstarfi við leiðandi alþjóðlegar stofnanir.
Gestir við opnunina fengu einnig að kynna sér nýju rannsóknarstofuna, þar sem Olga Ýr Björgvinsdóttir, forstöðumaður hennar og teymi veittu innsýn í starfsemina.