Norðlenskir sprotar fá fjármagn frá Kríu
Tvö fyrirtæki á Norðurlandi eru meðal ellefu sprotafyrirtækja sem valin voru í fjárfestingarátaki Nýsköpunarsjóðsins Kríu (NSK). Þetta eru Grænafl og Sea Thru ehf. en bæði þessi fyrirtæki eru þátttakendur í Hlunninum, sem er ársprógramm Driftar EA.
Sjóðurinn auglýsti átakið fyrr í haust og alls sóttu 88 félög um fjárfestingu. Sprotafyrirtækin ellefu voru valin úr þessum hópi eftir ítarlegt valferli og mun NSK fjárfesta í þeim fyrir samtals 300 milljónir króna. Eitt af skilyrðum átaksins er að félögin tryggi sér a.m.k. sömu upphæð frá einkafjárfestum. Samanlagt mun fjárfesting NSK og einkafjárfesta því verða að minnsta kosti 600 milljónir króna í þessum ellefu félögum.
Bæði verkefnin tengd sjávarútveginum en með ólíkum hætti
- Grænafl vinnur að orkuskiptum minni fiskiskipa, með því að taka olíuvélar úr bátum sem þegar eru í notkun og setja ýmist blendingsvélar eða rafhlöður í staðinn. Fyrst og fremst er hugað að rafvæðingu strandveiðiflotans, þar sem orkunýting þeirra býður upp á að þeir keyri á hreinu rafmagni.
- Sea Thru vinnur að hugbúnaðarlausn fyrir rekjanleika sjávarafurða gegnum alla virðiskeðjuna, sem stuðlar að auknu matvælaöryggi og fylgir sífellt strangari alþjóðlegum reglum um rekjanleika afurða. Nokkurs konar Google Maps fyrir fisk.
Eins og áður segir höfðu bæði þessi verkefni áður verið valin til þátttöku í Hlunninum á vegum Driftar EA, en þar býðst sprotafyrirtækjum og frumkvöðlum margvíslegur stuðningur. „Það er mjög ánægjulegt að Grænafl og Sea Thru nái að sýna sig og sanna með þessum hætti og sækja verðmæta fjármögnun til uppbyggingar. Bæði verkefni eru á mikilvægum stað í þróunarferlinu og í báðum tilfellum sannast að þrautseigja, metnaður og eljusemi skila árangri. Við hjá Drift EA erum þeirra forréttinda aðnjótandi að fá að fylgjast að og styðja við verkefnin og teymin sem standa að þeim,“ segir Hreinn Þór Hauksson, leiðtogi fjárfestingar og frumkvöðlaverkefna hjá Drift EA m.a. í fréttatilkynningu.
Kolbeinn Óttarsson Proppé er stofnandi og framkvæmdastjóri Grænafls, en heimahöfn þess verkefnis er á Siglufirði. „Við fögnum innilega þessari fjárfestingu frá Nýsköpunarsjóð Kríu. Hún mun gera okkur kleift að hefja breytingar á fyrsta bátnum þannig að hann muni keyra á 100 prósent rafmagni í stað olíu og hefja þannig rafvæðingu íslenska skipaflotans. Við komumst inn í Hlunninn hjá Drift EA fyrir tæpu ári síðan, sem hefur veitt okkur aðgang að sérfræðingum, leiðsögn og fjármagni, en það hefur gert okkur kleift að ná þangað sem við erum komin í dag,“ segir Kolbeinn m.a. í fréttatilkynningunni.
Arna Bryndís Baldvins McClure er stofnandi og framkvæmdastjóri Sea Thru ehf. „Við erum bæði stolt og þakklát fyrir þennan stuðning og þá viðurkenningu sem í honum felst. Hann gefur Sea Thru byr undir báða vængi og styrkir getu okkar til að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur fyrir næsta ár. Það skiptir okkur líka miklu máli að geta sagt frá því að MSC, stærsti vottunaraðili villts sjávarfangs í heiminum, hefur nú veitt okkur formlega stuðningsyfirlýsingu, sem er einstakt. Þá vil ég líka að þakka Drift EA sérstaklega, en þetta framtak þeirra frænda Þorsteins Más og Kristjáns Vilhelmssonar kom okkur og öðrum frábærum verkefnum af stað með ómetanlegum stuðningi, ekki síst andlegum, en nýsköpun er ansi mikil rússíbanareið á köflum,“ segir Arna Bryndís m.a. í fréttatilkynningunni.