Fara í efni
Mannlíf

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

„Þá er það að skella á okkur aftur, skammdegið. Þessi tími ársins þegar við vöknum í myrkri, förum í vinnuna í hálfrökkri og áður en við vitum af er orðið dimmt aftur. Þó að við Íslendingar ættum að vera orðin vön þessu, þá kemur þetta mörgum okkar jafn mikið á óvart á hverju einasta ári.“

Þannig hefst heilsupistill Guðrúnar Arngrímsdóttur sem akureyri.net birtir í dag.

„Sjálf finn ég alveg fyrir því þegar birtan fer að minnka. Orkan verður minni yfir dimmasta tímann, það verður aðeins erfiðara að koma sér af stað og sófinn verður óneitanlega meira aðlaðandi,“ skrifar Guðrún en segir það ekkert skrítið, því birtan hafi áhrif á „innri klukkuna okkar, svefn, orku og líðan.“

Pistill Guðrúnar: Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu