Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar
Ég sé á áframhaldandi greinarskrifum fulltrúa Samfylkingar í Umhverfis- og mannvirkjaráði að ég er inntur eftir svörum. Ég mun nú örugglega valda vonbrigðum þar, því ég verð hreinlega að fá að spyrja að ýmsu á móti.
Kristín Helga titlar sig nýliða. Ég á samt erfitt með að sjá hana í slíku ljósi, enda var hún kosningastjóri Samfylkingarinnar á Akureyri síðastliðið vor og rak öfluga baráttu þá. Hreint enginn byrjendabragur á því!
Umræðan, eins og ég skil hana, snýst um fjárhags- og framkvæmdaáætlanir bæjarins – eins og þær áætlanir eru að mótast innan fagráða bæjarins og í umræðum bæjarstjórnar.
Umræðan snýr, nánar til tekið, að fyrirhuguðum framkvæmdum og nýframkvæmdum bæjarins þegar kemur að íþróttamannvirkjum.
Ég veit, að sjálfsögðu, að mörgum finnst vel í lagt. Bæði nú og síðustu ár. Ég vil hins vegar minna á að framboðin voru nokkuð samhljóma síðastliðið vor. Flest okkar voru á því að klára þyrfti framkvæmdir á KA svæðinu og hreinlega ganga sómasamlega frá verki. Flest vorum við líka sammála um að þörf væri á íþróttahúsi í Þorpinu. Og flest töluðum við um að horfa þyrfti til framtíðar í þeim efnum.
Oddviti Samfylkingarinnar sagði sjálfur, í grein sem fór víða í aðdraganda kosninganna, að málefni íþróttanna væru „sérstakt áherslumál Samfylkingarinnar.“ Hann sagði jafnframt: „Við munum halda áfram að styðja við þá uppbyggingu sem hafin er og sjá til þess að framkvæmdirnar hjá KA og Þór verði kláraðar með sóma og í öruggum skrefum.“
Og, að endingu: „Við í Samfylkingunni erum raunsæ í okkar bæjarpólitík. Framkvæmdirnar sem hafnar eru hjá KA og þær sem framundan eru hjá Þór eru afar metnaðarfullar og munu taka upp mest af því framkvæmdafé sem skynsamlegt er að verja til uppbyggingar íþróttamannvirkja næstu árin.“
Ég hlýt því að spyrja bæði oddvitann og kosningastjóra framboðsins; hefur orðið stefnubreyting hjá S-listanum í þessum efnum?
Er það tillaga Samfylkingarinnar á Akureyri að:
- Klára ekki þær framkvæmdir sem eru hafnar á KA-svæðinu, eða þá fresta þeim? Ef tillagan er sú að við ættum að fresta framkvæmdunum, eða hætta hreinlega í miðju verki, þá óska ég eftir frekari útskýringum á því hvernig það samræmist hagsmunum bæjarbúa?
- Fresta eða hætta við byggingu íþróttahúss í Þorpinu? Ef svo er, þá er auðvitað hreinlegast að Samfylkingin segi það skýrum orðum og að afstaða bæjarfulltrúa og nefndarfólks sé þannig skýr. Þá kalla ég þó eftir frekari útskýringu á því, hvað veldur þeirri stefnubreytingu?
- Fresta eða hætta við að laga gervigrasið í Boganum? Þá spyr ég á móti, hvernig tryggjum við þá að hægt sé að nýta það mannvirki sem skyldi – og hvernig mætum við í framhaldinu æfingaóskum félaganna og óskum þeirra um mótshald?
Eitt til viðbótar sem mér finnst rétt að árétta. Við erum í miðju kafi við að undirbúa byggingu nýs íþróttahúss í bænum. Það liggur ekki fyrir endanleg útfærsla og það er enn töluvert í að við hefjumst handa, þótt að við séum farin að gera ráð fyrir þeim framkvæmdum í áætlunum okkar.
Það er að sjálfsögðu mikilvægt að ígrunda vel allar ákvarðanir. Það er mikilvægt að vinna eins vandaðar áætlanir og okkur framast er unnt. Þar hafa allir kjörnir fulltrúar hlutverki að gegna, hvort sem þeir tilheyra meiri- eða minnihluta. Það þarf að rýna vel í allt upplegg.
Það þarf að sjálfsögðu að veita gott aðhald.
Gunnar M. Gunnarsson er forseti bæjarstjórnar á Akureyri
- Sjá hér grein Sindra S. Kristjánssonar, oddvita Samfylkingarinnar á Akureyri, í aðdraganda kosninganna:
- Uppbygging íþróttamannvirkja á Akureyri - hugsum lengra | akureyri.net
Látum Loftbrúna vera
Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum
Félagsheimili eldri borgara á Akureyri
Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!