Fara í efni
Mannlíf

Næringarrík ber til manneldis og lækninga

Tegundin sem Sigurður Arnarson segir frá í pistli dagsins í röðinni Tré vikunnar hefur lengi verið þekkt Í Evrópu og Asíu fyrir næringarrík ber sem nýtt hafa verið til manneldis og lækninga. Hin síðari ár hefur ræktun hennar aukist víða en hvergi í heiminum er hún jafnmikið ræktuð og í Kína. Þar vex hún villt og er að auki mikið ræktuð. Ræktunin hefur einnig aukist utan náttúrulegra heimkynna til dæmis í Norður-Ameríku og þá einkum í Kanada. 

„Tré vikunnar er runni frekar en tré. Hann þarf sólríkan stað til að þrífast og er ekki hrifinn af mikilli samkeppni við annan gróður. Annars er hann harðgerður og er bæði vind- og saltþolinn,“ skrifar Sigurður. „Á Íslandi hentar hann vel í garða, á landgræðslusvæðum og sem hjálpar- og skrautplanta í skógrækt. Tré vikunnar, eða öllu heldur runni, er hafþyrnir, Hippophaë rhamnoides L. Okkur liggur svo mikið á hjarta að við munum skipta umfjölluninni í þrjá pistla og birta þá smám saman.“