Fara í efni
Mannlíf

Mikilvægi skóga og landnám skógarfugla

Þótt skógar séu enn fremur fágætir hér á landi er árangurinn vel sjáanlegur, segir Sigurður Arnarson í nýju pistli í röðinni Tré vikunnar á vef Skógaræktarfélags Eyfirðinga. „Hann sést meðal annars á því að skógarfuglum hefur fjölgað og nýjar tegundir hafa reynt að nema hér land. Framtíð sumra þeirra er trygg en aðrar eru enn að reyna fyrir sér. Sjálfsagt tekst varanlegt landnám hjá einhverjum þeirra með tíð, tíma og auknum skógum,“ segir Sigurður.

Sem dæmi um mikilvægi skóga fyrir íslenska fugla má nefna að auðnutittlingar urðu ekki áberandi á Suðurlandi fyrr en eftir 1970 því þá uxu upp skógarlundir og trjágróður í þéttbýli sem þeir sóttu í. Fyrir þann tíma voru þeir sjaldséðir, segir Sigurður.  

„Í nágrannalöndum okkar lifir fjöldi fuglategunda í skógum en aðeins lítill hluti þeirra finnst að jafnaði í íslenskum skógum. Aukin skógrækt gæti hugnast mörgum þeirra ef þeir á annað borð bærust til landsins,“ segir Sigurður og veltir fyrir sér hvað þurfi til svo að fleiri fuglategundir gætu numið land í íslenskum skógum.
 

Meira hér: Landnám skógarfugla