Meira af gráelri og náskyldum tegundum
Í barrskógabeltinu, allt í kringum norðurskautið, vaxa líkar trjátegundir sem eiga sér sameiginlega forfeður og -mæður. Þær mynda einhvers konar belti þar sem hver erfðahópur tekur við af öðrum. Ekki er alltaf auðvelt að átta sig á hvar einn hópur tekur við af öðrum því fátt hindrar erfðaflæði á milli hópanna. Þetta segir Sigurður Arnarson í nýjasta pistli raðarinnar Tré vikunnar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Í síðustu viku sagði Sigurður frá því í pistli hvernig ísöldin hafði áhrif á þessi náskyldu tré. „Þegar kuldaskeið gengu yfir gátu einstakir hópar einangrast og þróast á eigin forsendum. Þegar hlýskeiðin gengu yfir breiddu hóparnir úr sér. Ef þeir höfðu ekki breyst of mikið gátu þeir skipst á erfðaefni við hina hópana. Annars höfðu nýjar tegundir orðið til sem þó líkjast hinum eldri tegundum. Þessi lýsing gæti sem best átt við um ýmsar norðlægar tegundir en við erum með gráelri, Alnus incana, og skyldar tegundir í huga.“ Í pistli dagsins segir hann nánar frá hverjum hópi þessara tegunda og undirtegunda.
Meira hér: Gráelri og náskyldar tegundir