Fréttir
Lögmannshlíð: Messað á ný eftir endurbætur
11.09.2026 kl. 10:00
Lögmannshlíðarkirkja hefur verið vinsæl undir athafnir á borð við giftingar, skírnir og fermingar. Framkvæmdum þar er nú lokið og því hægt að nota kirkjuna á ný.
Messað verður í Lögmannshlíðarkirkju á nýjan leik á sunnudag eftir langt hlé, en kirkjan hefur á undanförnum þremur árum fengið algjöra yfirhalningu.
Meðal þeirra framkvæmda má nefna að búið er að laga sig á gólfi í norðaustur horni kirkjunnar. Þá er búið að slípa og lakka gólfborð, mála bekki og veggi, færa prédikunarstólinn og hækka kirkjubekkina.
Messað verður klukkan 11 og verður boðið upp á kaffi og kleinur utandyra að messu lokinni.
- Stutt myndband má sjá á Facebook síðu kirkjunnar þar sem prestarnir, séra Hildur Björk Hörpudóttir og Sindri Geir Óskarsson segja frá breytingunum og samkomunni á sunnudaginn. Smellið á samsettu myndina hér að neðan til að horfa.
- Fyrri frétt Akureyri.net um framkvæmdir í kirkjunni má sjá hér: Þorrakjötssúpa fyrir kirkjuna á bóndadaginn
