Fara í efni
Fréttir

Logi: Óboðlegt og ömurlegt

Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, þingmaður Norðausturkjördæmis og fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri, segir óboðlegt að setja öldrunarheimili í einkarekstur, ekki síst i miðri Kóvíd kreppu. Þetta kemur fram í pistli sem hann birtir á Facebook í tilefni þess að Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa samið við fyrirtækið Heilsuvernd um rekstur Hlíðar og Lögmannshlíðar á Akureyri. Það er gert í kjölfar þess að Akureyrarbær sagði upp samningi við SÍ vegna þess að bærinn hefur þurft að borga hundruð milljóna með rekstrinum á ári undanfarið.

Logi segir að fróðlegt verði að fylgjast með því hvort ríkisstjórnin muni veita fyrirtækinu aukið fé svo hægt verði að halda áfram með þá góðu þjónustu sem innt hafi verin af hendi. Hann segir ömurlegt að stjórnvöld undir forystu VG standi að breytingunni.

Grein Loga í heild er svohljóðandi:

„Nú liggur það fyrir að öldrunarheimilin á Akureyri verða rekin af einkahlutafélaginu Heilsuvernd í næstu framtíð. Vegna of lítilla rekstrarframlaga frá ríkinu, sem þó ber ábyrgð á rekstri hjúkrunarheimila, sá Akureyrarbær sér ekki mögulegt að reka heimilin áfram með halla ár eftir ár. Halla sem var greiddur af fjármagni sem átti að fara í aðra þjónustu við bæjarbúa. Og Akureyrarbær hefur borgað með rekstrinum í mörg ár í þeirri góðu trú að ríkið mundi koma með eðlilegum og sanngjörnum hætti að fjármögnun þess.

Þetta er sérstaklega ósanngjarnt og rýrði samkeppnishæfi bæjarins, þar sem víða eru hjúkrunarheimili rekin af ríkinu og þá lendir hallinn ekki á viðkomandi sveitarfélagi. En fyrst ríkið treysti sér ekki til að láta meira fé til sveitarfélagsins hefði ég kosið að stjórnvöld hefðu falið heilbrigðisstofnun svæðisins (HSN) eins og gert er víða um land.

Öldrunarheimili Akureyrar hafa verið rekin á grundvelli Eden hugmyndafræði þar sem áhersla er lögð á fjölbreytileika til að auðga daglegt líf hvers og eins, með því að skapa aðstæður þar sem lífið snýst um náin samskipti, tengsl og óvæntar uppákomur. Markmiðið er að koma í veg fyrir einmanaleika, vanmáttarkennd og leiða, sem eru meðal meginástæðna vanlíðunar íbúa hjúkrunarheimila.

Nú verður fróðlegt að fylgjast með hvort ríkisstjórnin muni veita þessu fyrirtæki aukið fé svo hægt sé að halda áfram með þá góðu þjónustu sem innt hefur verin af hendi eða hvaða leiða hinn nýji rekstraraðili hyggst grípa til að koma rekstrinum á réttan kjöl; rekstri sem hefur verið með hundruða milljóna halla á ári í all mörg ár.

Ég óttast því miður að verði ekki veitt auknu fé til rekstursins muni hagræðingaraðgerðir ekki allar verða í þágu gamla fólksins sem á skilið að fá að lifa áhyggjulausu ævikvöldi, við gott atlæti að loknu drjúgu dagsverki. Þá er ég hræddur um að þetta geti haft áhrif á starfsumhverfi og kjör starfsfólks.

Þessi áform ríkisstjórnarinnar standa því miður líklega óhögguð en það er mikilvægt að bæjarbúar og landsmenn allir fylgist vel með hvaða áhrif þetta hefur á íbúana. Með öðrum orðum hvað einkavæðing hjúkrunarheimila hefur í för með sér.

Í fyrsta lagi finnst mér óboðlegt að setja öldrunarheimili í einkarekstur, ekki síst i miðri Kóvíd kreppu. Í öðru lagi ömurlegt að stjórnvöld undir forystu VG standi að því.“