Fara í efni
Fréttir

Litrík, nýleg viðbót á Ráðhústorgið

Hús án veggja, nýjasta viðbótin við Ráðhústorgið. Mynd: SNÆ

Nýlega var litlum litríkum húsum komið fyrir á Ráðhústorgi. Húsin sem eru með þaki, borði og bekkjum, en  opin á allar hliðar eiga að auka notagildi torgsins enn frekar.

Eins og akureyri.net greindi frá á síðasta ári fékk Ráðhústorgið andlitslyftingu. Þá var grasflötin á miðju torginu stækkuð og þar settir hólar og steinar. Eins bættust þá við bekkir á torgið.  Guðríður Friðriksdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar, sagði þá í viðtali að markmiðið með breytingunum væri að gera svæðið hlýlegara og meira aðlaðandi fyrir fjölbreytta notkun.

Litríku opnu húsin og bekkirnir sem nú hafa bæst við svæðið eru hluti af þessari andlitslyftingu sem farið var í á Ráðhústorginu síðasta sumar og setja þau sannarlega svip á torgið.