Hólar, steinar og nýir bekkir á Ráðhústorgi

Framkvæmdir hafa undanfarið staðið yfir á Ráðhústorginu á Akureyri þar sem unnið hefur verið að því að breyta svæðinu. Markmiðið er, að sögn Guðríðar Friðriksdóttur, sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar, að gera torgið að stað þar sem fólk geti átt viðveru flesta daga ársins en ekki eingöngu í kringum einstaka viðburði.
„Við vildum gera svæðið hlýlegra og aðlaðandi fyrir fjölbreytta notkun,“ segir Guðríður. Stærsta breytingin felst í grasflötinni á miðju torginu sem búið er að stækka og setja þar hóla og steina. Guðríður segir ánægjulegt að sjá að þó framkvæmdum sé ekki lokið þá sé fólk strax farið að nýta torgið, bæði börn og fullorðna. „Það er greinilegt að líf á torginu og notkun svæðisins hefur strax aukist og stemmingin breyst. Börnin leika sér í grasinu og hoppa á milli steinanna,“ segir Guðríður.
Grashólar eru komnir á Ráðhústorgið en í sumar bætast líka við nýir bekkir með þaki. Áætlað er að heildarkostnaður við verkefnið nemi um 15 milljónir króna. Teiknistofa Norðurlands sá um hönnunina á endurbótunum.
Enn hægt að halda viðburði á torginu
Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á stærstu framkvæmdirnar en þó eiga eftir að bætast við bekkir á torgið síðar í sumar. Áætlað er að hönnun torgsins, hellulögn, stækkun á grassvæði, kaup á gróður- og blómakerjum, nýjum bekkjum með þaki yfir, og öðru sem auka á notagildi svæðisins og gera það meira aðlaðandi, kosti um 15 milljónir króna.
Þótt hólarnir á grasflötinni hafi vakið spurningar hjá sumum bæjarbúum, segir Guðríður að hólarnir rýri ekki möguleika á notkun torgsins á tyllidögum á borð við 17. júní. „Það er enn nægilega stór sléttur hluti af svæðinu til að hægt sé að halda tónleika og aðra viðburði á torginu. Annars hefur stór hluti 17. júní hátíðarhaldanna verið í Lystigarðinum undanfarin ár. Þá er Akureyrarbær líka að horfa til stúkunnar á Akureyrarvelli fyrir stærri viðburði í ár.“
Guðríður vonast til þess að hólarnir auki notagildi torgsins sem dvalarsvæðis dagsdaglega, en þeir geta líka nýst í leik að vetrarlagi fyrir yngstu börnin.
Það er Teiknistofa Norðurlands, undir stjórn Arnars Birgis Ólafssonar, sem sá um hönnun breytinganna á torginu. Að sögn Guðríðar er um að ræða tímabundna útfærslu þar sem til stendur að ráðast í stærri endurbætur á miðbænum í framtíðinni en þau áform eru enn óljós.
Arnar Birgir Ólafsson, hjá Teiknistofu Norðurlands, tyllir sér á stein á torginu.