Fara í efni
Fréttir

Leita að nafni fyrir fjarvinnusetrið

Aðstaðan í Fjarvinnusetrinu í Hrísey. Mynd: akureyri.is.

Akureyrarbær hefur auglýst eftir hugmyndum að nafni á fjarvinnusetur í Hrísey, sem opnað var að nýju í byrjun júnímánaðar eftir gagngerar endurbætur. Fjarvinnusetrið er í húsinu Hlein og deilir þar húsnæði með skrifstofu Akureyrarbæjar og mötuneyti Hríseyjarskóla. Nafnið sem verður fyrir valinu verður tilkynnt laugardagskvöldið 12. júlí á Hríseyjarhátíðinni.

Á vef Akureyrarbæjar eru upplýsingar um fjarvinnusetrið, en þar segir meðal annars:

Fagfólk úr hinum ýmsum greinum hefur nýtt sér þessa aðstöðu sem er leigð út gegn vægu gjaldi en námsmenn geta notað hana endurgjaldslaust. Þarna hefur til að mynda verið unnið að verkefnum á sviði fjármála, lögfræði og forritunar, fólk hefur sinnt þar símsvörun og ritstörfum, svo eitthvað sé nefnt.

Unnið er í opnu rými í fjarvinnusetrinu og þar eru fjögur skrifborð með skjá, lyklaborði og mús. Góðir skrifstofustólar eru við hvert borð og borðin eru upphækkanleg. 

Nánari upplýsingar um fjarvinnusetrið - sjá hér.

Þau sem vijla senda inn tillögu að nafni - sjá hér.