Menning
Sýnir bútasaumsverk í fuglaparadísinni Hrísey
16.07.2026 kl. 22:30
Dröfn Teitsdóttir opnar sýningu á bútasaumsverkum í Hrísey á morgun, föstudag. Mynd: Eva Ágústa Aradóttir.
Dröfn Teitsdóttir opnar á morgun sýningu á bútasaumsverkum í Hrísey. Hún hefur meðal annars hlotið 2. sæti í evrópskri bútasaumskeppni í flokki byrjenda og tekið þátt í samsýningu á vegum Einhverfusamtakanna, en þetta er fyrsta einkasýning Drafnar og er hluti Listasumars á Akureyri.
Dröfn er einhverf og hefur fjallað opinskátt um áhrif einhverfunnar á listsköpun sína. „Þetta er stórt skref fyrir mig – að fara út fyrir þægindarammann og bjóða fólki heim í fuglaparadísina okkar. Mig langar að sýna að bútasaumur er listform sem á erindi við alla,“ segir Dröfn.

Eitt verka Drafnar Teitsdóttur á sýningunni. Mynd: Gestur Leó Gíslason
Á sýningunni eru bútasaumsverk sem Dröfn hefur unnið á síðustu árum, að stórum hluta innblásin af fuglalífinu í Hrísey. „Verkin eru unnin með sérstakri mósaík-aðferð þar sem litir og form byggja upp myndræna heild úr hundruðum lítilla efnisbúta – lóan, krían, svanurinn og lundinn birtast þar í nýjum búningi. Markmið sýningarinnar er að kynna bútasaum sem listform, ekki eingöngu nytjahlut,“ segir í tilkynningu um sýninguna.
Gestir fá einnig að leggja hönd á plóg: boðið verður upp á vinnustofu þar sem hver þátttakandi vinnur sinn hluta í sameiginlegt bútasaumsverk sem verður hluti af sýningunni. Þannig verður sýningin lifandi vettvangur þátttöku og sköpunar fyrir alla aldurshópa.
Korter með ferju út í Hrísey
Í tilkynningu um sýninguna er minnt á að sigling út í Hrísey með ferjunni Sævari frá Árskógssandi tekur aðeins um 15 mínútur.
- Sýning Drafnar er á Hólabraut 4 í Hrísey.
- Sýningin verður opin frá kl. 13.00 til 16.00 föstudag 17. júlí og laugardag 18. júlí.
- Sýningin er hluti af Listasumri á Akureyri og aðgangur er ókeypis.

Eitt verkanna á sýningu Drafnar. Mynd: Gestur Leó Gíslason
Fjölskyldufyrirtæki
Vert er að geta þess að bútasaumslistaverk Drafnar prýða vörur fjölskyldufyrirtækisins Kashima – kashima.is – sem á rætur í Hrísey og Japan, eins og segir í tilkynningunni.
Á vef fyrirtækisins fá finna ýmsar áhugaverðar upplýsingar. Þar segir meðal annars:
- Nafnið KASHIMA hefur margvíslega merkingu fyrir okkur. Sigfús [eiginmaður Drafnar] er hálfur Japani og fjölskyldan bjó í tæp tvö ár í Japan meðan við vorum bara þrjú. Dröfn er alin upp í Hrísey í Eyjafirði og við vildum að nafnið myndi tengja okkur öll saman á einhvern hátt.
- KA (火) þýðir eldur og SHIMA (島) þýðir eyja, saman þýða orðin eldeyja eða eldfjallaeyja. Japan og Ísland eiga svo margt sameiginlegt þó so að löndin séu líka mjög ólíka á margan hátt. Eitt af því sem löndin eiga sameiginlegt er að vera eldfjallaeyjur. Margt í menningum þessara þjóða er líka líkt, þjóðirnar eru báðar þekktar fyrir háan lífaldur, borða mikinn fisk, heitar laugar og margt fleira. Svo skemmtilega vill til að ættarnafn fjölskyldu Sigfúsar í Japan er einmitt KASHIMA (鹿島), en merkir þá hreindýr.
- Merki KASHIMA saman stendur af kanji (japanskt tákn) fyrir eld (火) ofan á eyju.
- KAMI (紙) er japanskt orð fyrir pappír og fannst okkur það passa vel fyrir vörurnar okkar.