Fara í efni
Mannlíf

Lækjargata 3 hlaut hæsta varðveislugildi

„Neðst í Lækjargötu sunnanmegin, stendur reisulegt timburhús frá lokum 19. aldar, nánar tiltekið árinu 1896. Hér er um að ræða Lækjargötu 3, en Lækjargötu 1 er hvergi að finna, því aðliggjandi lóð austanmegin er Aðalstræti 8. Þessi lóð hefur verið byggð í tvær aldir, enda þótt núverandi hús sé „ekki nema“ 130 ára á þessu ári. Það reistu þau Sigfús Jónsson og Marselína Kristjánsdóttir.“

Þannig hefst nýr pistill Arnórs Blika Hallmundssonar í röðinni Hús dagsins sem akureyri.net birtir í dag.

„Lækjargata 3 er vitaskuld aldursfriðað hús, byggt fyrir 1923 og hlýtur í Húsakönnun 2012 hæsta varðveislugildi, sem einstakt hús, húsaröð eða götumynd sem lagt er til að vernda með hverfisskipulagi. Þá hlaut húsið, sem fyrr segir, viðurkenningu Húsverndarsjóðs Akureyrarbæjar árið 2003,“ segir Arnór Bliki. „Vestanmegin á lóðinni stendur lítið gestahús eða gistiskáli. Er sú bygging í sama stíl og húsið, með liggjandi panel og sexrúðugluggum og mætti þannig ætla, að um gamla byggingu sé að ræða. En svo er nú aldeilis ekki, því hús þetta er reist árið 2007 sem bílskúr en breytt í gistirými árið 2017.“

Pistill Arnórs Blika: Lækjargata 3