Fara í efni
Íþróttir

Kristófer með tvö mörk í fyrsta sigri Þórs

Kristófer Kristjánsson, til vinstri, gerði bæði mörk Þórs gegn Fjölni og Nökkvi Þeyr Þórisson gerði fyrra mark KA gegn Selfossi. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson.

Þór og KA hafa bæði lokið keppni í Lengjubikarkeppninni í knattspyrnu, alvöru æfingamóti sem KSÍ heldur jafnan á þessum árstíma. Síðustu leikirnir í riðlunum fóru fram um helgina. Þór/KA á eftir einn leik í Lengjubikarkeppni kvenna.

KA varð í 2.-3. sæti 4. riðils A-deildar og Þór í 4. sæti 2. riðils A-deildar. Efstu lið hvers riðlanna fjögurra fara í undanúrslit.

  • Fjölnir – Þór 1:2

Það var hinn 18 ára gamli Kristófer Kristjánsson sem gerið bæði mörk Þórsara þegar þeir mættu liði Fjölnis í Egilshöll á föstudagskvöldið. Kristófer skoraði fyrst á 11. mínútu og seinna markið snemma í seinni hálfleik. Fjölnir minnkaði muninn í blálokin með marki úr vítaspyrnu.

Smellið hér til að sjá leikskýrsluna.

Þórsarar lentu í fjórða sæti með fimm stig; unnu einn leik, gerðu tvö jafntefli og töpuðu tveimur leikjum.

  • Valur – Þór/KA 7:0

Liðin mættust á Valsvellinum á Hlíðarenda á laugardaginn og Stelpurnar okkar sáu vart til sólar eins og tölurnar gefa til kynna. Síðasti leikur þeirra í riðlakeppninni verður næsta laugardag gegn Fylki í Boganum.

Smellið hér til að sjá leikskýrsluna.

  • KA – Selfoss 2:3

KA tapaði í Boganum fyrir Selfossi, 3:2. Gestirnir komust í 2:0 á fyrsta hálftímanum en Nökkvi Þeyr Þórisson minnkaði muninn úr víti rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Selfyssingar bættu við marki strax í upphafi seinni hálfleiks og Steinþór Freyr Þorsteinsson gerði seinna mark KA á 75. mínútu.

Smellið hér til að sjá leikskýrsluna

KA endaði í 2.-3. sæti í 4. riðli A-deildar, vann tvo leiki, gerði tvö jafntefli og tapaði einum. Fékk átta stig eins og Fylkir en FH vann riðilinn með 13 stig.