KEA gerist bakhjarl Driftar EA
KEA og Drift EA hafa gert með sér samkomulag sem miðar að því að efla frumkvöðlastarf, nýsköpun og uppbyggingu nýrra fyrirtækja á Norðurlandi. Með samkomulaginu gerist KEA bakhjarl Driftar EA og tekur þar með virkan þátt í að styrkja stuðningsumhverfi sprota- og vaxtarfyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Drift EA.
Í tilkynningunni kemur fram að KEA hafi lengi lagt áherslu á að fjárfesta í ýmiss konar verkefnum sem styðja við vöxt atvinnulífs á félagssvæði sínu og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar í heimabyggð. Þá hefur KEA einnig komið beint að fjárfestingum í nýsköpunar- og vaxtarfyrirtækjum, fyrst með aðkomu að Tækifæri hf. á sínum tíma og nú í gegnum framtakssjóðinn Landvætti sem stofnaður var nýverið. Aðkoma KEA mun auka svigrúm Driftar EA til að tengja saman hugmyndir, fjármagn og þekkingu og skapar þannig sterkari forsendur fyrir verðmætasköpun í heimabyggð.
„Drift EA er lofsvert framtak og mun gegna lykilhlutverki í uppbyggingu nýrra hugmynda og fyrirtækja og sjáum við sterka samlegð í því við okkar fjárfestingaáherslur. Með þessu samstarfi erum við með öflugu fólki og fyrirtækjum að fjárfesta í skapandi umhverfi, hugmyndum og framtíð svæðisins og þetta er rökrétt skref hjá okkur í KEA í framhaldi af því að framtakssjóðnum Landvættum var nýlega ýtt úr vör með Kaldbaki,“ segir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA í fréttatilkynningunni.
Sesselja Ingibjörg Barðdal, framkvæmdastýra Driftar EA, segir að það sé mikill akkur að fá jafn sterkan aðila og KEA í lið með sér. „Með samstarfinu sameinum við krafta fjárfestis, sem hefur skýra sýn og sterka samfélagslega ábyrgð, við lifandi frumkvöðla- og nýsköpunarumhverfi. Samstarfið mun skapa raunveruleg tækifæri fyrir hugmyndir að vaxa og dafna hér á svæðinu og skapar skilyrði fyrir fjölbreytt og öflugra atvinnulíf,“ segir Sesselja í fréttatilkynningu Driftar.