Fara í efni
Fréttir

Kaldbakur sjálfstætt fjárfestingafélag

Hermann Hermannsson, forstöðumaður Rekstrar Landsbankans, og Eiríkur S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri fjárfestingafélagsins Kaldbaks og stjórnarformaður Samherja.

Fjárfestingafélagið Kaldbakur ehf., sem er að fullu í eigu Samherja, tók í gær formlega við Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri. Kaldbakur flytur starfsemi sína í húsið á næstu dögunum og bankinn verður þar áfram þar til hann finnur sér annan hentugan stað. Stjórnendur Samherja hafa ákveðið að gera rekstur og fjárfestingar Kaldbaks sjálfstæðan. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins. 

  • Sjö tilboð bárust í húsið þegar það var auglýst til sölu í haust og tilboð Kaldbaks var hæst. Smelltu hér til að sjá frétt Akureyri.net um kaupin.

Eiríkur S. Jóhannsson framkvæmdastjóri Kaldbaks og stjórnarformaður Samherja hf. undirritaði kaupsamninginn í gær ásamt Hermanni Hermannssyni, fulltrúa bankans. Segja má að Eiríkur sé á leiðinni „heim“ því hann starfaði um árabil hjá Landsbankanum á Akureyri, var meðal annars útibússtjóri og svæðisstjóri bankans á Norðurlandi.

Teikningar Guðjóns Samúelssonar hafa verið vel varðveittar hjá Landsbankanum.

„Því er ekki að neita, þetta er söguleg stund og merkileg fyrir mig persónulega enda ber ég sterkar taugar til þessa fallega og svipsterka húss. Viðbrögð almennings við kaupunum voru almennt mjög jákvæð, eftir að viðskiptin voru kunngerð. Starfsemi Landsbankans verður áfram í hluta hússins eða þar til bankinn finnur sér annan hentugan stað. Kaldbakur flytur sína starfsemi í húsið á næstu dögum, okkar markmið er að glæða það frekara lífi. Í þeim efnum kemur ýmislegt til greina og ekki vantar að hugmyndum hefur verið komið til okkar, sem við metum mikils,“ segir Eiríkur á vef Samherja.

Landsbankahúsið, sem tekið var í notkun árið 1954 setur mikinn og fallegan svip á Ráðhústorg. Fyrstu tillöguuppdrætti að húsinu gerði Guðjón Samúelsson en að honum látnum tók Bárður Ísleifsson við og gerði hann eftir það alla uppdrætti.

Fjárfestingastarfsemi skilin frá Samherja

Frá því Samherji var stofnaður fyrir nærri fjörutíu árum, hefur félagið eignast hluti í ýmsum félögum sem í dag teljast ekki til kjarnastarfsemi fyrirtækisins, „það er að segja veiðum, fiskeldi, vinnslu og sölu afurða. Til að skerpa á áherslum í starfseminni og auka gagnsæi hefur verið ákveðið að Kaldbakur taki yfir þessar eignir og verði sjálfstætt starfandi fjárfestingafélag,“ segir á vef Samherja.

„Samkvæmt skiptingaráætlun er fullur aðskilnaður Kaldbaks við Samherja miðaður við uppgjör 30. júní 2022 og verður áætlunin að fullu komin til framkvæmda í lok þessa árs. Kaldbakur verður sterkt félag með eignarhluti í félögum bæði hér á Íslandi sem og erlendis,“ segir Eiríkur S. Jóhannsson.

Ljósmynd: Þórhallur Jónsson