Bjarni verður fimmta Margrét Samherja
Uppsjávarskipið Bjarni Ólafsson AK-70 er komið til nýrrar heimahafnar á Akureyri. Skipinu verður gefið nafnið Margrét og verður þar með fimmta skipið í sögu Samherja sem ber það nafn. Greint er frá þessu á vef fyrirtækisins í morgun.
Gengið var frá kaupum Samherja á skipinu frá Síldarvinnslunni í Neskaupstað um miðjan október og síðan hefur það verið á síldveiðum. Síldarmiðin voru fyrir austan land og síðasta farminum, um 900 tonnum, var landað á Fáskrúðsfirði í síðustu viku.
- Frétt akureyri.net um kaupin: Bjarni Ólafsson bætist í flota Samherja

Hjörtur Valsson skipstjóri. Mynd: Samherji / Bjarney Anna Þórsdóttir
„Maður verður að vera bjartsýnn“
Hjörtur Valsson skipstjóri segir á vef Samherja að fyrstu veiðiferðirnar hafi gengið ágætlega. „Við vorum allan tímann fyrir austan land og heilt yfir gekk þetta nokkuð vel. Það var svolítið misjafnt veður, brælur inn á milli og þess vegna voru stundum stuttir túrar á milli lægða,“ segir Hjörtur.
Hann segir að skipið hafi reynst vel og lofi góðu. „Þetta skip hefur mjög góðan togkraft. Það er góð aðalvél í því og getur togað stór veiðarfæri. Svo er auðvitað mikill kostur að skipið er með nótabúnaði. Það getur skipt miklu máli og aukið möguleika okkar í uppsjávarveiðunum. Þetta er gott sjóskip, hljóðlátt og aðbúnaður áhafnar er fínn,“ segir Hjörtur.

Skipið var smíðað 1999 og var keypt til Íslands árið 2015. Hjörtur segir augljóst að vel hafi verið hugsað um skipið. „Já, það lítur vel út miðað við aldur og hefur verið haldið vel við. Hér er búið að endurnýja fullt af búnaði eins og kælikerfi, löndunarkerfi og ýmislegt annað. Svo er annað sem kominn er tími til að endurnýja og bæta, eins og eðlilegt er,“ segir Hjörtur.
Nú tekur við hefðbundið viðhald, áður en skipið verður undirbúið fyrir komandi loðnuvertíð. „Maður verður að vera bjartsýnn fyrir loðnuvertíðina og vonandi bara að það verði bætt í kvótann. Þetta er vel búið skip í nótaveiðar og ætti að hafa alla burði til að standa sig vel á loðnuveiðum,“ segir Hjörtur Valsson.