Fara í efni
Minningargreinar

Jón Hólmgeirsson

Með Jóni Hólmgeirssyni tengdaföður mínum er genginn ljúfur og traustur maður sem skilur eftir sig stórt skarð í fjölskyldu okkar. Það var mikil gæfa fyrir mig að kynnast þeim hjónum í Álfabyggð 7, ástríki og hlýja er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til baka. Í 42 ár hefur Jón umvafið mig sem annar faðir. Það reyndi mikið á Nonna í veikindum og við andlát Sigrúnar, langt fyrir aldur fram. Dugnaður og metnaður hans að hugsa vel um heimilið, garðinn og gróðurhúsið eins og Sigrún hafði gert var mikill. Það kom fyrir að hann sagðist hafa drepið uppáhalds rósina í gróðurhúsinu og var ekki kátur. En alltaf keypti hann nýja því ekki kom til greina að gefast upp á rósaræktinni

Hann var ekki hár í lofti þegar hann byrjaði að hjálpa pabba sínum í smiðjunni á æskuheimili sínu í Stafni. Að þvi bjó hann alla tíð að geta bjargað sér með það sem þurfti. Hugarfarið „ég hlýt að geta þetta“ kom honum langt þegar við vorum t.d. að steikja saman laufabrauð, taka slátur eða þegar hann stytti buxurnar sínar og hafði aldrei notað saumavél áður.

Jón var farsæll í ævistarfi sínu sem kennari og smiður. Hann átti marga góða vini og minntist þeirra og fyrrum nemenda sinna með miklum hlýhug.

Hann var blíður og natinn við barnabörnin sín, einstaklega duglegur að taka þau með í verkin og kenna þeim réttu handtökin.

Elsku Nonni, það er komið að leiðarlokum. Við áttum alltaf mikil og góð samskipti í gegnum árin þar sem þú komst næstum daglega í sveitina til okkar og tókst til hendinni, já eða til að elda jólamatinn meðan við vorum í fjósi. Sú hjálp var ómetanleg. Mér þykir ákaflega vænt um að hafa getað umvafið þig síðustu vikur og síðustu andartökin þín. Við áttum svo innihaldsrík samtöl, ekkert var ósagt okkar á milli og fyrir það er ég þakklát. Þú varst hvíldinni feginn og ég sé þig fyrir mér dansa um „grænu brekkuna“ með fólkinu þínu sem undan er gengið.

Hvíl í friði

Líney Snjólaug Diðriksdóttir

Jón Hólmgeirsson

Helena Kristín Brynjólfsdóttir og Brynjólfur Jón Brynjólfsson skrifa
10. apríl 2026 | kl. 12:30

Jón Hólmgeirsson – lífshlaupið

10. apríl 2026 | kl. 08:00

Jón Hólmgeirsson

Kristján I. Jónsson, Þorbjörg K. Jónsdóttir og Hólmgeir Jónsson skrifa
10. apríl 2026 | kl. 08:00

Páll Halldór Jónsson

Arna Dögg Arnarsdóttir skrifar
31. mars 2026 | kl. 09:00

Páll Halldór Jónsson

Eiður Stefánsson skrifar
31. mars 2026 | kl. 06:00

Páll Halldór Jónsson

Sigríður Jóna Pálsdóttir skrifar
31. mars 2026 | kl. 06:00