Jaðarsvöllur: 60 ár frá fyrstu skóflustungu
GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 129
Keppni á Arctic Open mótinu í golfi lauk á Jaðarsvelli í morgun. Nú eru 40 ár síðan mótið var haldið í fyrsta sinn, árið 1986, og annarra tímamóta verður hægt að minnast í haust þegar 60 ár verða frá því fyrsta skóflustunga var tekin að golfvellinum.
Það var Helgi Skúlason augnlæknir, einn stofnenda Golfklúbbs Akureyrar (GA) – maðurinn með hattinn við skófluna – sem tók fyrstu skóflustunguna að vellinum laugardaginn 17. september 1966, og lýsti því yfir að framkvæmdir við golfvöllinn að Jaðri væru hafnar.
Eins og akureyri.net hefur áður fjallað um var Golfklúbbur Akureyrar stofnaður 19. ágúst 1935. Fyrst um sinn fékk klúbburinn aðstöðu á Gleráreyrum þar sem Slippstöðin hóf síðar starfsemi (og er nú athafnasvæði Slippsins). Þar var komið upp 6 holu golfvelli en árið 1945 fékk klúbburinn aðstöðu sunnan og ofan við Menntaskólann á Akureyri, við Þórunnarstræti, þar sem gerður var 9 holu völlur. Þar slógu akureyrskir kylfingar allt til ársins 1970 þegar Jaðarsvöllur var tekinn í notkun. Þar voru 9 holur fyrstu árin en 1981 var Jaðarsvöllur stækkaður upp í 18 holur.
Kannast lesendur við aðra á myndinni? Gaman væri að fá nöfn þeirra sem standa í fjarska send á netfangið skapti@akureyri.net