Íslandsbikarinn aftur í Laugardalinn
Lið Skautafélags Reykjavíkur varð í kvöld Íslandsmeistari í íshokkí karla eftir sigur á SA Víkingum í Skautahöllinni í Laugardal, 3-2. SR vann einvígið 3-0.
Heimamenn í Laugardalnum komust í 3-0 áður en fyrsta mark SA Víkinga leit dagsins ljós. Snemma í þriðja leikhluta minnkuðu SA Víkingar muninn í 3-2 og hleyptu spennu í leikinn, en þrátt fyrir ákafar tilraunir og góð tækifæri tókst þeim ekki að jafna og því fór sem fór.
SR-ingar opnuðu markareikninginn þegar rúmar 12 mínútur voru liðnar af leiknum. Jonathan Otuoma átti þá skot í varnarmann SA, fékk pökkinn aftur og náði góðu skoti sem hafði viðkomu í samherja hans, Alex Mána Sveinssyni, og þaðan í markið. Axel Orongan kom SR í 2-0 seint í fyrsta leikhlutanum þegar hann komst í snögg sókn ásamt Heiðari Erni Kristveigarsyni, eftir misheppnaða sendingu í sókn SA. Enn syrti í álinn snemma í annarri lotunni þegar Þorgils Eggertsson skoraði þriðja mark SR. Enn var þó nóg eftir og SA Víkingar ekki þekktir fyrir að gefast upp.
Skoruðu þrjú, en bara tvö gild
Jóhann Már Leifsson minnkaði muninn um miðja aðra lotuna eftir gott einstaklingsframtak, fékk þá pökkinn inni í eigin varnarsvæði og skautaði framhjá varnarmönnum SR og skoraði. Þegar um sex mínútur voru eftir af öðrum leikhluta fögnuðu SA-Víkingar þegar þeir töldu Heiðar Gauta Jóhannsson hafa skorað. Unnar Hafberg Rúnarsson átti þá hörkuskot í stöng og Heiðar Gauti fékk pökkinn í skautann og þaðan fór hann í markið, því miður dæmt af þar sem niðurstaða dómara eftir fundahöld var að hann hefði sparkað pökknum í markið með skautanum.
Það voru hins vegar ekki liðnar tvær mínútur af þriðja leikhlutanum þegar Heiðar Gauti kom pökknum aftur í markið og í þetta skipti var það gott og gilt. Ormur Jónsson átti þá skot að marki sem fór í varnarmann og þaðan lenti pökkurnn hjá Heiðari Gauta sem skoraði.
Markið hleypti auðvitað aukinni spennu í leikinn og hart barist það sem eftir var. SA tók leikhlé þegar 1:16 var eftir á klukkunni. Fljótlega eftir leikhléið komst Styrmir Maack einn á móti Róberti í marki SA, sem varði glæsilega. SA fór í sókn og Heiðar Gauti við það að komast í færi, en var felldur og dómur á SR, sem þurftu þá að spila einum færri síðustu 54 sekúndurnar. SA tók Róbert úr markinu til að fjölga sóknarmönnum, spiluðu þá sex á móti fjórum útileikmönnum, komust í gott færi, en Jóhann Björgvin varði í marki SR. Aftur var tekið uppkast í varnarsvæði SR og SA Víkingar reyndu hvað þeir gátu að jafna leikinn, en leiktíminn rann út og SR vann leikinn 3-2 og einvígið 3-0.
SR - SA 3-2 (2-0, 1-1, 0-1)
Helstu tölur:
SR
Mörk/stoðsendingar: Alex Máni Sveinsson 1/0, Axel Orongan 1/0, Þorgils Eggertsson 1/0, Hákon Marteinn Magnússon 0/3, Jonathan Otuoma 0/1, Styrmir Maack 0/1.
Varin skot: Jóhann Björgvin Ragnarsson 15 af 17 (88,24%).
Refsingar: 8 mínútur.
SA
Mörk/stoðsendingar: Jóhann Már Leifsson 1/0, Heiðar Gauti Jóhannsson 1/0, Hank Nagel 0/1, Atli Sveinsson 0/1, Ormur Jónsson 0/1, Elvar Skúlason 0/1.
Varin skot: Róbert Steingrímsson 15 af 18 (83,33%).
Refsingar: 4 mínútur.
Úrslit leikja í einvíginu:
- SR - SA 6-5 (0-3, 1-1, 4-1, 1-0)
- SA - SR 1-5 (0-2, 1-1, 0-2)
- SR - SA 3-2 (2-0, 1-1, 0-1)
Eftir því sem akureyri.net kemst næst er þetta í áttunda skipti sem Skautafélag Reykjavíkur verður Íslandsmeistari í karlaflokki. Skautafélag Akureyrar hefur unnið titilinn 24 sinnum, síðast í fyrra, Björninn einu sinni og UMFK Esja einu sinni.