Fara í efni
Íþróttir

Íshokkílandsliðin: Akureyringar fjölmennir

Akureyringarnir í U18 landsliðshópi kvenna. Aftari röð frá vinstri: Silvía Rán Björgvinsdóttir aðstoðarþjálfari, Eyrún Arna Garðarsdóttir, Heiðrún Helga Rúnarsdóttir, Magdalena Sulova, Marey Viðja Sigurðardóttir. Fremri röð frá vinstri: Freyja Rán Sigurjónsdóttir, Sylvía Mörk Kristinsdóttir, Kolbrún Björnsdóttir, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir, Sólrún Assa Arnardóttir og Aníta Júlíana Benjamínsdóttir.

Eins og jafnan áður hefur ungt íshokkífólk frá Akureyri verið áberandi í yngri landsliðum Íslands að undanförnu. U18 ára landslið drengja, sem lék til úrslita um gullverðlaun í 3. deild B á dögunum, hafði á að skipa 12 leikmönnum frá Skautafélagi Akureyrar, af 20 leikmanna hópi. Sömu sögu er að segja af U18 ára landsliði stúlkna, sem vann til silfurverðlauna í 2. deild B fyrr í mánuðinum, þar sem SA átti tíu leikmenn, auk einnar sem nú spilar erlendis, og U20 landsliði karla á HM í janúar þar sem voru 12 leikmenn úr röðum Skautafélags Akureyar, ásamt einum frá SA sem nú spilar erlendis. Í 2. deild B, sem er næstneðsta deild HM, keppa lið nr. 27-32 í heiminum.

Athygli vekur að sjö leikmenn úr röðum SA í U18 landsliðshópnum spiluðu einnig með U20 landsliðinu í janúar. 

  • U18 landslið kvenna með silfur í Suður-Afríku
    Ferðalögin í landsliðsverkefni eru misjafnlega löng og öruggt að stelpurnar í U18 landsliðinu í íshokkí hafi farið lengra en landslið. Þær spiluðu í 2. deild B á Heimsmeistaramótinu og fór sú keppni fram í Suður-Afríku. Íslenska liðið vann silfurverðlaun þriðja árið í röð. Í þeim hópi voru margar úr SA.

    Tíu leikmenn SA voru í U18 hópnum, auk þess sem Akureyringurinn Díana Lóa Óskarsdóttir, sem nú leikur í Svíþjóð var annar markvarða liðsins. Marey Viðja Sigurðardóttir frá SA var einnig markvörður U18 liðsins. Marey Viðja hélt hreinu í stórsigri gegn Suður-Afríku, en skotin þó reyndar ekki nema fimm talsins.

    Aðrar frá SA í U18 hópnum: Aníta Júlíana Benjamínsdóttir, Eyrún Arna Garðarsdóttir, Freyja Rán Sigurjónsdóttir, Heiðrún Helga Rúnarsdóttir, Kolbrún Björnsdóttir, Magdalena Sulova, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir, Sólrún Assa Arnardóttir og Sylvía Mörk Kristinsdóttir



    Landslið Íslands í íshokkí kvenna, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, vann til silfurverðlauna í 2. deild B á Heimsmeistaramótinu þriðja árið í röð. Skautafélag Akureyrar á marga fulltrúa í þessu liði eins og öðrum íshokkílandsliðum. Myndin er fengin af vefnum ishokki.is.
    Kolbrún Björnsdóttir var jöfn annarri á toppi markalistans, skoraði sjö mörk. Kolbrún átti sex stoðsendingar og endaði því með 13 stig. Sólrún Assa Arnardóttir var næststigahæst í mótinu með 15 stig, þrjú mörk og 12 stoðsendingar. Íslenska liðið vann stórsigur á heimaliðinu, Suður-Afríku, 21-0 í fyrsta leik. Þar skoraði Kolbrún fjögur mörk og átti fjórar stoðsendingar. Sólrún Assa skoraði tvö mörk og átti sex stoðsendingar í þeim leik. 

    SA-leikmenn sem skoruðu og/eða áttu stoðsendingar: Kolbrún Björnsdóttir 7/6, Eyrún Garðarsdóttir 4/3, Sólrún Assa Arnardóttir 3/12, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir 1/4, Aníta Benjamínsdóttir 1/2, Heiðrún Helga Rúnarsdóttir 1/1, Magdalena Sulova 1/0, Freyja Rán Sigurjónsdóttir 0/3 og Magdalena Sulova 0/1. Marey Viðja Sigurðardóttir var með 88% markvörslu og Díana Lóa Óskarsdóttir 86,57%.

    Þó ferðalagið hafi verið langt létu foreldrar nokkurra leikmanna það ekki aftra sér frá því að fylgja liðinu. Stuðningssveitin Kylfan vakti mikla athygli fyrir líflegan stuðning og fjörlegt útlit, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Um það má meðal annars lesa í frétt á íshokkívefnum ishokki.is - Stuðningssveitin Kylfan slær í gegn. Meðfylgjandi mynd er fengin úr þeirri frétt.



  • Tólf plús einn frá SA í U20 landsliði karla
    Skautafélag Akureyrar átti einnig marga fulltrúa í U20 landsliðinu sem spilaði í 2. deild B í Serbíu síðla janúarmánaðar. Þar voru 13 leikmenn SA af 22 í leikmannahópi Íslands. Íslenska liðið vann einn leik, sem var reyndar frækinn sigur á gestgjöfunum í Serbíu, en tapaði fjórum leikjum. Þegar upp var staðið endaði liðið í neðsta sæti B-riðils 2. deildar og féll niður í 3. deild. Hollendingar voru einnig með þrjú stig eins og Íslendingar. Hollendingar voru með mun verri markamun en Íslendingar, en röðuðust ofar á innbyrðis viðureigninni. 


    Þrettán leikmenn frá SA í U20 landsliði karla sem spilaði í Serbíu í janúar og þrennt í starfsliðinu. Aftari röð frá vinstri: Elías Rúnarsson, Stefán Darri Guðnason, Alex Freyr Ingason, Aron Gunnar Ingason, Rúnar Freyr Rúnarsson aðstoðarþjálfari, Bjarmi Kristjánsson, Bjarki Jóhannesson, Ólafur Baldvin Björgvinsson, SA-maður sem nú leikur í Danmörku, Elvar Ingi Sigurðarson og Kristján Sturluson liðsstjóri. Fremri röð frá vinstri: Hanna Vigdís Jóhannesdóttir heilbrigðisstarfsmaður, Finnur Bessi Finnssson, Mikael Eiríksson, Bjartur Westin, Askur Reynisson og Magnús Sigurður Sigurólason.
    Athygli vekur að sjö í þessum hópi eru einnig gjaldgengir með U18 landsliðinu sem hefur verið í eldlínunni í Bosníu-Herzegóvínu undanfarna daga. Eins og hjá U18 landsliði drengja eru það foreldrar leikmanna sem veljast í starfsliðið. Bjarmi er sonur Kristjáns liðsstjóra og Bjartur er sonur Hönnu Vigdísar heilbrigðisstarfsmanns.

    Þrátt fyrir að lenda í neðsta sætinu var íslenska liðið með þriðju bestu skotnýtingu mótsins og í 4. sæti yfir hlutfall varinna skota. Báðir markverðir liðsins eru frá SA, þeir Elías Rúnarsson og Elvar Ingi Sigurðarson.

    Aðrir leikmenn SA í U20 landsliðinu: Alex Máni Ingason, Aron Gunnar Ingason, Askur Reynisson, Bjarki Þór Jóhannsson, Bjarmi Kristjánsson, Daníel Snær Ryan, Finnur Bessi Finnsson, Magnús Sigurður Sigurólason, Mikael Darri Eiríksson og Stefán Darri Guðnason. Auk þessara var Akureyringurinn Ólafur Baldvin Björgvinsson, sem nú leikur í Danmörku í þessum hópi. 

    SA-leikmenn sem skoruðu og/eða áttu stoðsendingar: Ólafur Baldvin Björgvinsson 2/1, Bjarmi Kristjánsson 1/2, Alex Ingason 1/1, Bjarki Jóhannesson 1/1, Stefán Darri Guðnason 1/0, Mikael Eiríksson 0/1, Bjartur Westin 0/1 og Elvar Sigurðarson 0/1. Elías Rúnarsson var með 80,85% markvörslu og Elvar Ingi Sigurðarson 88,81%.