Íþróttir
Íshokkí: Þriðji leikur SA og SR í kvöld
26.03.2026 kl. 06:00
Hokkíkonurnar í SA þakka stuðningsfólki að loknum sigri í fyrsta leik einvígisins. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.
Þriðji leikur í úrslitakeppni Toppdeildar kvenna í íshokkí er á dagskrá í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld. Staðan í einvíginu er 1-1 og því ljóst að viðureignin fer að minnsta kosti í fjóra leiki.
SA vann fyrsta leikinn á Akureyri 1-0, en SR svaraði með 2-1 sigri í öðrum leik eftir framlengingu og vítakeppni.
- Toppdeild kvenna í íshokkí
Úrslit, leikur 3
Skautahöllin á Akureyri kl. 19:30
SA - SR - Útsending: icehockeyiceland.tv
Áskrift að rás eða stökum leikjum