Í kælibransanum í hartnær fjóra áratugi

Aron Ernir Guðmundsson hefur tekið við starfi þjónustustjóra hjá Kælismiðjunni Frost á Akureyri en því hefur Bragi Hlíðar Kristinsson gegnt vel á þriðja tug ára. Yngri kynslóðin tekur við af þeirri eldri í þessu, eins og öðru, segir á vef fyrirtækisins, þar sem finna má skemmtilegt spjall við tvímenningana.
„Ég byrjaði á Vélsmiðjunni Odda hf. árið 1984, þá 22 ára gamall, og starfaði hjá því fyrirtæki þar til það sameinaðist Slippstöðinni hf.,“ segir Bragi þegar hann horfir í baksýnisspegilinn. Á þessum tíma störfuðu um 160 manns í Slippstöðinni en um 30 manns í Vélsmiðjunni Odda. Slippstöðin var fyrst og fremst í smíði og viðhaldi skipa og báta en Vélsmiðjan Oddi var bæði í ýmsum smíða- og viðhaldsverkefnum sem tengdust ekki síst sjávarútveginum og einnig var fyrirtækið með kælideild.
Ekki liðu margir mánuðir þar til sýnt þótti að rekstur kælideildarinnar færi ekki vel saman við starfsemi Slippstöðvarinnar. Leiðir skildu því og fyrrum starfsmenn kælideildar Vélsmiðjunnar Odda, starfsmenn kælifyrirtækis í Reykjavík og Eignarhaldsfélag Alþýðubankans stofnuðu Kælismiðjuna Frost.
„Eftir að Kælismiðjan Frost var stofnuð var ég og einn starfsmaður Slippstöðvarinnar í nokkra mánuði að ljúka verkefnum kælideildar sameinaðs fyrirtækis. Að þeim tíma loknum fór ég síðan til starfa hjá Kælismiðjunni Frost, sem var til að byrja með í Draupnisgötu 3, þar sem Gúmmíbátaþjónusta Norðurlands er til húsa í dag, enda var ég einn þeirra sem komu að stofnun fyrirtækisins,“ rifjar Bragi upp.
Þjónustustjóri hjá Frost í 26 ár
Bragi er vélstjóri að mennt. Þegar hann settist á skólabekk var ekki hægt að taka allt námið á Akureyri og því fór hann til Reykjavíkur, var í tvo vetur í Vélskóla Íslands og útskrifaðist vorið 1984. Hann fór svo á samning í Vélsmiðjunni Odda þegar hann kom aftur norður. Í byrjun var hann í vélvirkjadeildinni en fór fljótlega yfir á kælideildina, sem Elías Þorsteinsson stýrði þá. Síðar bætti Bragi við sig námi í rafvirkjun.
Frá árinu 1998 eða í um 26 ár hefur Bragi verið þjónustustjóri hjá Frost. „Þegar ég byrjaði í þessu starfi var fyrirtækið gjörólíkt því sem það er í dag. Þá var varla hægt að tala um eiginlega tæknideild, eins og er núna, og því fór tilboðsgerð, innkaup og annað í gegnum þjónustustjórana. Oft fóru hálfu og heilu dagarnir hjá mér í tilboðsgerð sem síðan breyttist þegar tæknideildin hér á Akureyri og í Garðabæ varð jafn öflug og raun ber vitni. Tilboðsgerðin og yfirsýn yfir verk sem voru í gangi gerðu það að verkum að ég var í góðum samskiptum við viðskiptavini okkar út um allt land. Við mig var haft samband á öllum tímum sólarhringsins því eðli þessa bransa er að það þarf að bregðast skjótt við ef eitthvað bilar.
Með tilkomu öflugrar tæknideildar hefur tilboðsgerðin og einnig innkaupin færst frá þjónustustjórunum yfir til hennar en í hlut þjónustustjóranna, bæði hér á Akureyri og í Garðabæ, kemur m.a. að skipuleggja mönnun verkanna,“ segir Bragi.
Vörutalning var fyrsta skrefið
Aron Ernir Guðmundsson, sem fæddur er 1997, rifjar upp að fyrstu kynni hans af Kælismiðjunni Frost hafi verið þegar hann var fenginn til þess að taka þátt í vörutalningum á lager fyrirtækisins í tengslum við uppgjör um áramót. Ekki hafi verið aftur snúið og málin þróast á þann veg að hann hafi farið að vinna á sumrin hjá fyrirtækinu. Eitt leiddi af öðru, Aron var harðákveðinn í því að læra eitthvað sem tengdist vélvirkjun og kæliiðnaði og því var beinn og breiður vegur í vélstjórnarnám í VMA árið 2013. Áfram hélt Aron að vinna hjá Frost á sumrin og var til að byrja með í blikkinu en síðan fór hann yfir í uppsetningar á iðnaðarkerfum, auk almennrar þjónustu við kæli- og frystikerfi, og hefur unnið um land allt og erlendis. Vélstjórnarnáminu lauk Aron árið 2018 og síðar tók hann viðbótarnám vélstjóra til þess að fá einnig réttindi sem rafvirki. Það nám gat Aron tekið í lotum og var á meðan í fullri vinnu. Þegar hann lauk rafvirkjanáminu tóku við verkefni við raflagnir og tengingu stýrikerfa fyrir kæli- og frystikerfi.
Sveinsprófi hefur Aron lokið í bæði vélvirkjun og rafvirkjun og nú er hann í meistaraskóla til þess að öðlast meistararéttindi í vélvirkjun. „Mér finnst skipta máli að fá líka meistararéttindi því þannig get ég til dæmis verið með nema á mínum snærum, rétt eins og Bragi var meistarinn minn í vélvirkjuninni og lagði mér lífsreglurnar,“ segir Aron.
Ekki gervigreindarsímsvörun í Frost
Sem fyrr segir hefur starf þjónustustjóra tekið breytingum í gegnum tíðina með stækkun fyrirtækisins, sem hefur verið hröð síðustu ár og misseri. Nýjasta stækkunarskrefið voru kaup Frost á rafverktakafyrirtækinu TG raf efh í desember sl. Starfsmönnum hefur því fjölgað umtalsvert og umsýslan öll er umtalsvert meiri en á árum áður. Bragi segir að þegar mörg verk séu í gangi sé oft mikið púsluspil að skipuleggja mönnun verka, að rétti mannskapurinn sé á réttum tíma í verkum. Einnig þurfi að tryggja og skipuleggja aðkomu undirverktaka að verkum.
Bragi hefur verið í veikindaleyfi undanfarna mánuði og leysti Jón Gunnlaugur Sigurjónsson hann af síðasta sumar sem þjónustustjóri á Akureyri en frá september á liðnu ári hefur Aron leyst Braga af. Þegar Bragi ákvað af heilsufarsástæðum fyrir nokkrum vikum að láta staðar numið í starfi þjónustustjóra var Aron Ernir ráðinn í starfið frá og með 1. apríl sl.
Aron segir að eftir sem áður felist í starfi þjónustustjóra að skipuleggja mönnun verka en einnig komi bilanagreining inn á sitt borð og aðstoð og leiðbeiningar af ýmsum toga til viðskiptavina.
„Það má í stórum dráttum segja að starfsstöðvarnar á Akureyri og í Garðabæ skipti landinu á þann veg að á okkar könnu hér fyrir norðan eru Vestfirðir, Norðurland og Austfirðirnir suður á Höfn. Ef í gangi eru stærri verkefni á suðvesturhorninu komum við líka oft að þeim. Og það má auðvitað ekki gleyma því að auk verkefna hér innanlands er töluverður hluti verkefna fyrirtækisins erlendis,“ segir Bragi.
„Það sem er svo ótrúlega skemmtilegt við starf þjónustustjóra er að það eru engir tveir dagar eins. Það er nóg að gera, þetta er mjög fjölbreytt og það sem gerir starfið líka svo lifandi og áhugavert eru samskipti við mikinn fjölda fólks í hinum ýmsu atvinnugreinum. Ég er fullur tilhlökkunar fyrir því sem fram undan er og það er mér mikils virði að geta leitað í reynslubrunn Braga þegar á þarf að halda,“ segir Aron.
En hvernig skyldi starf þjónustustjóra, á tímum ört vaxandi gervigreindar, verða eftir tíu til fimmtán ár? Bragi segist ekki telja að það muni taka verulegum breytingum. Auðvitað mun tækni hjálpa á öllum sviðum en áfram verði eftir sem áður bein samskipti við kúnnann, ekkert komi í staðinn fyrir þau. „Ég sé ekki að gervigreindin taki að sér símsvörun í Frost,“ segir Bragi Hlíðar Kristinsson.