Fara í efni
Mannlíf

Hvaða áhrif getur beit spendýra haft á skóga?

„Það er kunnara en frá þurfi að segja að þegar landnemar Íslands komu hingað fyrir meira en ellefu öldum var landið betur gróið en nú er. Talið er að þá hafi birkiskóga verið að finna á um 25% til 40% landsins eftir því hvaða forsendur vísindamenn hafa gefið sér.“

Þannig hefst pistill Sigurðar Arnarsonar í röðinni Tré vikunnar. Í dag fjallar Sigurður um beit í skógum og hvaða áhrif hún getur haft. „Nú þekkjum við þau ferli sem eyddu skógum Íslands og gjörbreyttu ásýnd landsins. Þess vegna vitum við að hægt er að rækta skóga í beitilandi ef varlega er farið,“ segir Sigurður í kynningu á pistlinum og boðar pistil í næstu viku um hagaskóga og hvernig þeir geta bætt beitiland.

Meira hér: Skógarbeit