Fara í efni
Menning

Hvað verður eftir af jöklunum eftir 100 ár?

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Ný sýning um íslenska jökla – BRÁÐNUN – var opnuð í Listasafninu á Akureyri í gær. „Hvað verður eftir af íslenskum jöklum eftir 100 ár?“ er spurt í kynningu á sýningunni og í tilefni dagsins var myndarlegri hrúgu af snjó, ellegar ís, komið fyrir á stéttinni utan við safnið.

Þótt langt sé liðið á nóvember var nokkurra stiga hiti á Akureyri í gær og verður næstu daga þannig að framvindan verður að öllum líkindum táknræn; á myndinni sést hvernig skaflinn leit út laust fyrir klukkan tíu í gærkvöld en vart þarf að spyrja hvað verði eftir af honum að nokkrum dögum liðnum. Nema Veðurstofan skipti fljótlega um skoðun.

  • Vert er að geta þess að í tengslum við sýninguna verður heimildamyndin Tíminn og vatnið sýnd fjórum sinn í Ketilhúsinu, í fyrsta sinn í dag, föstudag 27. nóvember. Sýning myndarinnar hefst klukkan 15.00 en erindi á vegum Jöklarannsóknafélags Íslands hefst hálftíma áður.

FLÁAJÖKULL – Á myndinni til vinstri eru danskir landmælingamenn á ferð um 1900. Myndina til hægri tók Mark Reysoo árið 2023.

List, vísindi og skynjun

Á sýningunni er fjallað um íslenska jökla, sögu þeirra og framtíð og sjónum beint að þeim miklu breytingum sem nú eiga sér stað. Jöklarnir birtast gestum „í gegnum ljósmyndir, rannsóknir, gögn, hljóð, lykt og innsetningar. Þar mætast list, vísindi og skynjun og varpa ljósi á eitt mikilvægasta umhverfis- og náttúruviðfangsefni samtímans,“ segir í tilkynningu frá Listasafninu.

„Jöklarnir eru órjúfanlegur hluti af íslensku landslagi og náttúru, en framtíð þeirra er óviss í ljósi loftslagsbreytinga. Með sýningunni er gestum boðið að staldra við, skoða og velta fyrir sér tengslum okkar við jöklana og þeirri spurningu hvað taki við þegar landslagið breytist.“

TUNGNAKVÍSLÁRJÖKULL – Myndina til vinstri tók Frederick Howell árið 1891 en hina Hrafnhildur Hannesdóttir sumarið 2022.

Sýna Tímann og vatnið

Í tengslum við sýninguna í Ketilhúsinu verður heimildamyndin Tíminn og vatnið (Time and Water) sýnd fjórum sinnum. Á undan hverri sýningu flytur Jöklarannsóknafélag Íslands erindi um íslenska jökla, rannsóknir á þeim og mikilvægi sjálfboðaliðastarfs við vöktun þeirra.

Erindin eru eftirfarandi:

  • Föstudag 27. nóvember – Jöklarannsóknafélag Íslands (Jöklafössari).
  • Laugardag 5. desember – Jöklarannsóknir og þátttaka almennings.
  • Laugardag 12. desember – Jöklar Íslands, þá og nú.
  • Laugardag 9. janúar – Sporðamælingar með augum sjálfboðaliða.

Öll erindi hefjast kl. 14:30 og kvikmyndasýningar kl. 15:00.

Sýningin Bráðnun og tengdir viðburðir eru haldnir með stuðningi 66°Norður, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Sýningin er hluti af Glacier Friday-átaki 66°Norður, sem er hugsað sem andsvar við Black Friday,“ segir í þeirri tilkynningu. „Í stað þess að hvetja til neyslu er fólki boðið að staldra við, hugsa um framtíð íslenskra jökla og styðja mikilvægar vísindarannsóknir sem gera okkur kleift að skilja þær breytingar sem eiga sér stað. Með átakinu er jafnframt leitast við að vekja athygli á stærra samhengi loftslagsbreytinga og mikilvægi þess að vernda umhverfi okkar.“

Sýningin er unnin í samvinnu við Jöklarannsóknafélag Íslands, National Geographic Film documentary, Andra Snæ Magnason, RAX - Ragnar Axelsson, Fischersund og Listasafnið á Akureyri, segir í tilkynningu 66°Norður.

Mynd: Skapti Hallgrímsson