Fara í efni
Íþróttir

Hringbraut „heimili“ Lengjudeildarinnar

Kristófer Kristjánsson og félagar í Þór verða undir smásjánni á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í sumar. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Einn leikur hverrar umferðar í Lengjudeildinni, næst efstu deild Íslandsmóts karla í knattspyrnu, verður sýndur beint í opinni dagskrá á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í sumar. Þá verður markaþáttur á stöðinni eftir hverja umferð eins og á síðasta ári.

Lengjudeildin verður með heimili á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í sumar, eins og það er orðað í tilkynningu frá Torgi, eiganda Hringbrautar. Torg og Íslenskur toppfótbolti (ÍTF) hafa gengið frá samkomulagi þess efnis. Þórsarar leika í Lengjudeildinni í sumar eins og undanfarin ár.

Í sumar verða því 22 beinar útsendingar frá leikjum í deildinni og 22 markaþættir, þar sem farið verður yfir alla leikina í hverri umferð.

„Við erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi, síðasta sumar var góð reynsla en meira verður lagt í hlutina í ár. Lengjudeild karla verður eina deildarkeppnin á Íslandi sem er í opinni dagskrá. Það er mikið af stórum félögum í deildinni og við eigum von á skemmtilegu sumri. Það verður gaman að geta boðið fólkinu í landinu upp á beinar útsendingar í opinni dagskrá," segir Hörður Snævar Jónsson fréttastjóri íþróttadeildar Torgs í tilkynningu.

Torg er eigandi Hringbrautar en að auki eru Fréttablaðið og DV undir sama hatti. „Lengjudeildinni verða gerð góð skil í blaði Fréttablaðsins sem og á vef og þá verður ítarleg umfjöllun um Lengjudeildina á vef DV."

Leikirnir sem verða í beinni útsendingu í upphafi móts eru þessir:

  • 1. umferð
    Laugardag 7. maí klukkan 14.00, Grótta - Vestri
  • 2. umferð
    Föstudag 13. maí klukkan 19.15, Kórdrengir - Fylkir
  • 3. umferð
    Föstudag 20. maí klukkan 19.15, Afturelding - Selfoss