Fréttir
Hljómsveit Akureyrar færði Píeta 500 þúsund
03.02.2026 kl. 09:00
Í lok tónleika Hljómsveitar Akureyrar í Glerárkirkju 17. janúar afhentu stjórnandinn, Michael Jón Clarke og konsertmeistarinn, Ásta Óskarsdóttir Píeta samtökunum rúmar 500 þúsund krónur sem söfnuðust og vilja koma á framfæri þökkum til bæjarbúa fyrir góðar undirtektir.
Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur.
Hljómsveitin hélt tónleika undir yfirskriftinni Brosandi Beethoven, aðgangur var ókeypis en tekið var við frjálsum framlögum til styrktar Píeta samtökunum.