Fréttir
														
Hátíð hollvina og SAk á Glerártorgi í dag
											
									
		10.12.2022 kl. 13:00
		
							
				
			
			
		
											
									Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri og starfsfólk stofnunarinnar standa fyrir hátíð á Glerártorgi í dag frá klukkan 14.00 til 16.00.
- Félagsmenn í hollvinasamtökunum kynna starfsemi þeirra og skrá nýja félaga.
 - Hollvinasamtökin safna nú fyrir hryggsjá á skurðstofu SAk, sem er metnaðarfyllsta verkefni samtakanna hingað til að Jóhannesar G. Bjarnasonar, formanns samtakanna. Nánar um það gríðarlega mikilvæga tæki síðar.
 - Starfsfólk sjúkrahússins stendur fyrir mælingu á blóðþrýstingi, súrefnismettun og púlsi.
 - Bangsa og dúkkuhorn – Unga fólkinu býðst að koma með uppáhaldsleikfangið sitt í læknisskoðun.