Fara í efni
Mannlíf

Hann hefði betur veikst af krabbameini

Henni fannst sem hún væri í lausu lofti, upplýsingar skorti og ógagnsæi biðlistanna gerði að verkum að hún gat ekki skipulagt „hvernig eða hvenær þau myndu selja húsið og minnka við sig eða hvort hún gæti mögulega heimsótt Önnu systir sína í Kaupmannahöfn.“

Í sjöunda og síðasta pistli í snarpri röð sem hann skrifar fyrir akureyri.net og kallar Sögur úr heilbrigðiskerfinu, fjallar Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir til áratuga, um konu og eiginmann hennar sem greindur er með heilabilun.

Hún upplifir skipulags- og stjórnleysi í heilbrigðiskerfinu og ráðaleysi yfir svo kölluðum fráflæðisvanda. „Henni leið ekkert betur þegar hún las í blaði að sá hópur aðstandenda sem bíður heima í óvissu biðlistanna, bundinn og einangraður í umönnunarhlutverki með nánustu ættingja sína Alzheimerveika, er svipaður af stærð og allir íbúar meðalstórs kaupstaðar úti á landi,“ skrifar Ólafur Þór.

„Hún gat ekki varist þeirri hugsun að það hefði verið betra ef Baldur hefði veikst af krabbameini. Þá hefði verið skýrt hvert ætti að leita, hvers væri að vænta og hver framvindan yrði.“