Fara í efni
Mannlíf

Hafþyrnisber – lítil, súr en safarík og æt

Sigurður Arnarson fjallaði nýlega um hafþyrni í pistlaröðinni Tré vikunnar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga; runna sem þætti eftirsóknarverður til ræktunar í heiminum vegna aldinanna, en væri einnig nýttur til landgræðslu og garðræktar. Í nýjum pistli skoðar hann umræddan þyrni á ný og fjallar um berin og berjarækt.

„Aldinin eru lítil, safarík, æt, súr ber og í hverju þeirra er eitt, brúnt fræ. Oftast eru berin um fimm til átta mm í þvermál, rauðgul að lit, hálfhnöttótt eða egglaga að lögun,“ segir Sigurður í pistlinum. „Þau sitja mörg saman eftir endilöngum greinunum. Að jafnaði eru þau mjög föst á plöntunum og geta hangið á henni nær allan veturinn. Þá eru þau sérlega áberandi á lauflausum runnum. Hjá sumum plöntum lýsast berin tíðum er líður á veturinn.“