Fara í efni
Fréttir

Hægt að panta Gedda-treyju til kl. 13 í dag

Þórsarar eru afar þakklátir fyrir þau ótrúlegu viðbrögð sem salan á Gedda-treyjunni hefur fengið en um 400 treyjur eru þegar seldar, sem er ómetanlegur stuðningur. Pöntunarfrestur rennur út kl. 13 í dag, mánudag, og afhending á treyjunum verður í júnílok, eftir því sem fram kemur á Facebook-síðu stuðningsmanna Þórs.

  • Smellið hér til að panta treyju:

https://macron.is/vara/fyrirgedda/

Eins og sagt var frá um helgina greindist Gestur Arason, liðsstjóri knattspyrnuliðs Þórs síðustu ár – og ötull sjálfboðaliði í félaginu að ýmsu öðru leyti – með bráða hvítblæði í byrjun mánaðarins og Þórsarar kynntu fallegt framtak til styrktar fjölskyldunni. Útbúin var sérstök treyja sem merkt er FYRIR GEDDA, hún er seld á 15.000 krónur og allur ágóði rennur til fjölskyldunnar.

  • Þórsarar hafa líka stofnað styrktarreikning fyrir þá sem vilja styrkja Gedda beint.

Reikningsupplýsingar: Íþróttafélagið Þór, kennitala 710269-2469 og reikningsnúmer 0566-26-001101.