Fara í efni
Menning

Guðmundur Ármann undir berum himni

Guðmundur Ármann Sigurjónsson á vinnustofu sinni. Mynd: Rakel Hinriksdóttir

Guðmundur Ármann opnar sýningu á vatnslitamyndum í Deiglunni á Akureyri á laugardaginn. Sýninguna nefnir Guðmundur Undir berum himni; þar verða um 30 vatnslitamyndir, málaðar á árunum 2019 til 2024 og er myndefnið að mestu nærumhverfi listamannsins við Eyjafjörð.

„Á sýningunni Undir berum himni eru allar myndirnar málaðar úti í náttúrunni, ýmist var þeim lokið á staðnum eða í sumum tilfellum unnið að smáatriðum heima á vinnustofunni. Vegna úrkomu eða að vindur gerðist æði ágengur svo erfitt var að hemja spjald og trönur. Var þá tími til kominn að snúa þangað sem ekki blésu vindar né rigndi,“ segir í tilkynningu frá listamanninum.

Allt eru þetta fíguratífar vatnslitamyndir sem Guðmundur lítur ekki á sem frumdrög að stærri olíumálverkum, heldur sem fullburða myndverk. „Þannig enn dvalist með annan fótinn í veröld figúratífs myndmáls.“


  • Yfirlitssýning Guðmundar Ármanns, Aðflæði, var opnuð á Listasafninu á Akureyri um síðustu helgi. Hér má sjá og heyra fróðlegt viðtal Rakelar Hinriksdóttur við listamanninn sem birtist á akureyri.net á föstudaginn var:
  • Maður getur ekki gengið með grjóthnullung í maganum

Myndir Guðmundar eru annars vegar málaðar úti með vatni, bindiefni og litadufti á vatnslitaörk; „það er einstök upplifun sem býður upp á tæra sýn á náttúruna, litina, formin og birtuna,“ segir hann. „Hins vegar unnið að myndlist á vinnustofunni þar sem eru máluð abstrakt málverk með olíu, teikningum og grafík. Þar er horft inn á við í einhvers konar minni og lögmáli hins tvívíða flatar.“

Hann segir: Er mikill munur á þessari ólíku nálgun við myndefnið? Hvar liggja mörkin á milli þess sem býr í náttúrunni og þess sem býr hið innra með okkur? Það er efni í aðra hugleiðingu og e.t.v. aðra sýningu.“

  • Sýningin verður opnuð á laugardaginn kl. 14.00 og verður opin laugardag og sunnudag.
  • Aftur verður opið miðvikudaginn 11. febrúar kl. 14.00 til 17.00 og loks á föstudag, laugardag og sunnudag á sama tíma.