Grunnspurningin: Á hverju byggi ég líf mitt?
„Við eyðum oft miklum tíma í að hugsa um hvað við viljum gera, bæta eða ná. Við setjum okkur markmið, skipuleggjum dagana okkar og reynum að halda utan um allt sem við viljum sinna. Sjaldnar gefum við okkur tíma til þess að staldra við grunnspurninguna sem liggur undir þessu öllu saman: Á hverju byggi ég líf mitt?“
Þannig hefst nýr heilsupistill Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur. Hún og Guðrún Arngrímsdóttir, eigendur Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar á Akureyri, skrifa pistla fyrir akureyri.net sem birtast aðra hverja viku.
Hrafnhildur heldur áfram:
„Eitt það mikilvægasta sem við getum gert fyrir okkur sjálf er einmitt að skoða þennan grunn.
Ef við ímyndum okkur stórt, fallegt og heilbrigt tré, með kraftmikinn stofn og falleg laufblöð, þá vitum við að það á djúpar og sterkar rætur sem halda því stöðugu, sama hvernig veðrið leikur við það. Ræturnar sjást ekki alltaf, en þær skipta þó öllu máli.
Gildin okkar eru einmitt þessar rætur.“
Pistill Hrafnhildar: Gildi – þinn innri áttaviti