Fara í efni
Mannlíf

Gránufélagsgata er ein sú áhugaverðasta

„Ein af áhugaverðari götum Akureyrar er Gránufélagsgata. Hún þræðir Oddeyri sem beint strik frá bryggjunum á austanverðum Oddeyrartanga, tæplega kílómetra leið vestur og upp að rótum Brekkunnar þar sem leiðin liggur á brattann undir nafni Oddeyrargötu.“

Þannig hefst nýr pistill Arnórs Blika Hallmundssonar í röðinni Hús dagsins en í dag fjallar hann um Gránufélagsgötu 18 sem Ólafur Árnason sjómaður frá Siglufirði reisti árið 1906. Það er eitt fyrsta húsið reis við götuna.

Arnór Bliki vitnar í pistlinum í skemmtilega frásögn Tryggva Þorsteinssonar skátaforingja:

Við öxluðum farangurinn [við Lundargötu 10, sem löngum kallaðist Gunnarshólmi] og síðan var haldið upp Kúagötu, sem nú ber það langa og leiðinlega nafn, Gránufélagsgata. Það getur reyndar verið að gatan hafi heitað þessu ónefni frá upphafi, en okkur fannst meira vit í að kalla hana Kúagötu því kýrnar spásséruðu þessa götu kvölds og morgna allt sumarið bæjarbúum til mikillar ánægju.“ Þarna segir Tryggvi frá ferð með skátaflokki vorið 1925 en kýrnar spásséruðu um Gránufélagsgötu og upp Oddeyrargötu (sem einnig kallaðist Kúagata) til beitar, og bæjarbúum til ánægju, á Brekkuna langt fram eftir 20. öldinni.