Fara í efni
Fréttir

Gefa Grímseyingum kirkjuklukkur

Mynd af fréttavefnum Vísi, þar sem fjallað var um gjöfina til Grímseyinga í dag.

Hallgrímssöfnuður í Reykjavík hefur látið gera tvær kirkjuklukkur sem gefnar verða Grímseyingum í stað þeirra sem bráðnuðu þegar Miðgarðakirkja brann til grunna haustið 2021. Bygging nýrrar kirkju stendur yfir í eynni.

Eftir guðsþjónustu að morgni páskadags voru þessar glænýju kirkjuklukkur afhjúpaðar og blessaðar í fordyri Hallgrímskirkju. Þar verða þær til sýnis fram á sumar eða þar til þær munu hljóma í turni nýrrar kirkju við heimskautsbaug, þegar allt er til reiðu.

Klukkurnar eru nýsteypa Konunglegu Eijsbouts klukkusteypunnar í Asten, Hollandi, sem hefur steypt allar klukkur Hallgrímskirkju, smáar sem stórar. Nýju klukkurnar eru úr hágæða bjöllubronsi með innanverðum kólfi úr stáli, að því er segir á vef þjóðkirkjunnar.

Grétar Einarsson, yfirkirkjuvörður Hallgrímskirkju afhjúpar klukkurnar á páskdag. Grétar er sonur Einars heitins Einarssonar djákna, sem starfaði um skeið í Grímsey, og gerði nokkra af þeim kirkjumunum sem glötuðust í eldinum.

Endurgjalda vinargjöf

Á veggspjaldi í anddyri Hallgrímskirkju er rakin saga Miðgarðakirkju og bruna hennar 21. september 2021 svo og byggingar nýrrar kirkju í Grímsey sem er komin vel áleiðis. „Í brunanum bráðnuðu tvær gamlar bronsklukkur. Hallgrímssöfnuður ákvað að standa fyrir söfnun og láta steypa nýjar klukkur í Hollandi. Með þessu er Hallgrímskirkja að endurgjalda vinargjöf frá því fyrir hálfri öld, en þá var ein af klukkunum í klukknaspili kirkjunnar gefin í nafni Grímseyinga,“ segir á vef Hallgrímskirkju.

Um þetta segir á vef þjóðkirkjunnar: „Fyrir rúmum 50 árum, þegar stóru klukkurnar í Hallgrímskirkju voru pantaðar, var ákveðið að láta gera um leið klukkuspil með 29 bjöllum af mismunandi stærð og tóntegund. Ýmis samtök atvinnurekenda, fyrirtæki og athafnafólk, svo og Kvenfélag Hallgrímskirkju, gáfu allar bjöllurnar. Á einni klukkunni stendur: Frá Grímseyingum. Gefandi V.F. Þar mun vera um að ræða Vigfús Friðjónsson, síldarsaltanda, útgerðar- og athafnamann.“

Vígð á þessu ári?

Kirkjan í Grímsey var orðin fokheld í fyrrahaust en framhaldið ræðst af því hvernig gengur að safna fjármunum til verksins. Á vef þjóðkirkjunnar segir að gert sé ráð fyrir því að kirkjan verði vígð á þessu ári.

Sóknarnefnd Hallgrímskirkju í Reykjavík hafði forgöngu um að safna fyrir nýjum kirkjuklukkum í hina nýju Miðgarðakirkju. Haustið eftir brunann var efnt til samskota í þremur messum og síðastliðið haust voru haldnir vel sóttir söfnunartónleikar undir heitinu Hljómar frá heimsskautsbaugi þar sem norðlenskir stórsöngvarar og tónlistarfólk komu fram ásamt organista og kór Hallgrímskirkju, segir á vef kirkjunnar.

Gömlu klukkurnar í Miðgarðakirkju voru merktar árunum 1799 og 1852 og voru úr bronsi, sem bráðnaði þannig að ekkert varð eftir heillegt nema kólfarnir sem eru úr járni. Í áletrun á nýju klukkunum er minnt á smíðaár gömlu klukknanna í Grímsey, ennfremur árið sem þær bráðnuðu í eldi, og árið 2023 þegar kirkjuklukkur hljóma á ný.

  • Höfuðstokkar, sem leika munu í klukkuási turns nýju kirkjunnar í Grímsey, eru úr galvaniseruðu stáli.
  • Tónn stærri klukkunnar, sem er 37 sentímetrar að þvermáli, er Dís3.
  • Hún vegur um það bil 35 kílógrömm.
  • Tónn minni klukkunnar, sem er 32 sentímetrar að þvermáli, er F3.
  • Hún vegur 32 kílógrömm.
  • Klukkunum verður hringt með reipum upp á gamla mátann til að byrja með en hægt verður að raftengja þær þegar fram líða stundir.
  • Tekið verður á móti framlögum til byggingar nýrrar kirkju í Grímsey á meðan klukkusýningin stendur í Hallgrímskirkju.

Afhjúpun og blessun. Einar Karl Haraldsson, formaður sóknarnefndar Hallgrímskirkju, stýrði athöfninni, sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir sóknarprestur mælti blessunarorð og Grétar Einarsson afhjúpaði kirkjuklukkurnar.