Íþróttir
Akureyrarmeistarar KA innanhúss 1978
13.06.2026 kl. 10:00
Úr myndasafni Íslendings
GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 128
Akureyrarmót í innanhússknattspyrnu var árlegur viðburður fyrir margt löngu. Þessi skemmtilega mynd er af 4. flokki KA sem varð Akureyrarmeistari laugardaginn 30. desember árið 1978. Svo skemmtilega vill til að þrír þessara ungu drengja urðu Íslandsmeistarar í knattspyrnu með KA rúmum áratug síðar. Þeir eru hlið við hlið í fremri röðinni, lengst til vinstri er Bjarni Jónsson, þá Halldór Halldórsson og loks Stefán Ólafsson.
Fleiri nöfn verða ekki nefnd að sinni heldur lesendum boðið upp á skemmta sér við að þekkja drengina, eins og stundum áður. Margir kunna deili á þeim og nöfnin verða birt síðar. Upplýsingar má gjarnan senda á netfangið skapti@akureyri.net og nöfnin verða birt síðar.