Fara í efni
Mannlíf

Fyrsta heimili séra Matthíasar í bænum

„Flestir þekkja húsið Sigurhæðir, hús þjóðskáldsins séra Matthíasar Jochumssonar en það reisti hann árið 1903 og átti þar heima til dánardægurs, 1920. Sigurhæðir voru ekki hans fyrsta heimili á Akureyri, því hingað fluttist hann árið 1887. Kom hann sér þá fyrir í 38 ára gömlu húsi við Aðalstræti, sem áður hafði gegnt hlutverki prentsmiðju.“

Þannig hefst nýr pistill Arnórs Blika Hallmundssonar í röðinni Hús dagsins.

Í pistlinum kemur fram að fyrsta prentsmiðja á Akureyri var í umræddu húsi en ekki í Steinhúsinu við Norðurgötu sem gengur undir nafninu Gamla Prentsmiðjan, eins og oft er haldið fram. 

Núverandi eigandi hússins Aðalstræti 50 er Anna Guðný Sigurgeirsdóttir. „Aðalstræti 50 er sérlega geðþekkt og fallegt hús og til mikillar prýði. Endurbætur á því fyrir aldarfjórðungi hafa lukkast stórkostlega og nostrað hefur verið við smáatriði t.d. hlaðinn reykháf. Þá hafa hinir örsmáu gluggar í forstofuskúrnum verið látnir halda sér, einhverjum hefði eflaust þótt lítið mál að fella þá undir slagþil,“ segir Arnór Bliki. „Umhverfi hússins er líka einstaklega skemmtilegt, lóðin er vel gróin og í góðri hirðu og líkt og víðar á þessum slóðum væri jafnvel hægt að tala um landareign, því lóðin er meira en 3000 fermetrar og nær langleiðina að Kirkjugarðinum. Áberandi er mjög gróskumikill og stæðilegur silfurreynir fast sunnan við stafn hússins. Norðan við húsið er brunnur, sem líklega er frá svipuðum tíma og húsið var byggt. Hann fannst við endurbætur á lóðinni um 2001 og var við það tækifæri mokað upp úr honum og hann gerður upp með álíka glæsibrag og húsið sjálft.“

Pistill Arnórs Blika: Aðalstræti 50