Frábærar til að lesa í fyrsta skipti á íslensku

AF BÓKUM – 32
Í dag skrifar Aija Burdikova_ _ _
Árstíðir og Dagatal – sögur á einföldu máli eftir Karítas Hrund Pálsdóttur
Tvær frábærar bækur – smásögur fyrir fólk sem er að læra íslensku sem annað mál, vill æfa sig í lestri og læra meira um íslenska menningu og hefðir.
Það getur verið áskorun að lesa heila bók á íslensku í fyrsta skipti. Eina leiðin til að bæta kunnáttu sína er að prófa sig áfram en mikilvægt er að byrja á einföldu efni til að missa ekki áhugann. Bestu bækurnar fyrir þetta verkefni að mínu mati eru bækurnar hennar Karítasar Hrundar Pálsdóttur.
Bækurnar innihalda áhugaverðar sögur og efni þeirra veitir tækifæri til þess að læra meira um hefðir allt árið um kring í íslensku samfélagi og hversdagsleikann hér á landi. Formálar í bókunum eru skrifaðir af tveimur landsþekktum konum af erlendum uppruna: í Árstíðum er formáli eftir Elizu Reid fyrrum forsetafrú og í Dagatali Claudiu Ashanie Wilson, lögmann. Sögurnar eru miserfiðar og þær eru flokkaðar eftir erfiðleikastigi – tákn í byrjun sýna það. Hér eru nokkur dæmi úr sögunum.
Sagan Hringdu í Halla hjálpar til við fallbeygingu sem er sjálfsagður hlutur fyrir fólk sem á íslensku sem móðurmál en getur verið mjög ruglandi fyrir fólk sem er að læra málið. Auk þess er reglur um framburð „ll“ flóknar. Dæmi úr sögunni: Halla er kona, en að hringja í Halla þýðir að fá að tala við mann sem heitir Halli.
Ég efast um að margir sem eru nýlega fluttir til landsins, og hér sérstaklega til Akureyrar, kannist við þetta fyrirbæri sem sagan Danska á sunnudögum segir frá.
Í sögunni Gellur fær fólk að læra um tvær mismunandi merkingar orðsins.
Í sögunni Sólarleysi fáum við ráð um hvernig á að takast við skammdegið.
Í gegnum sögurnar er hægt að fræðast um rithöfunda t.d. Guðrúnu frá Lundi og Halldór Laxness, hátíðir t.d. Bóndadag, Bolludag, Þorláksmessu og söguna t.d. Jón Sigurðsson og Hallgrím Pétursson.
Efni til að læra og æfa íslensku er af skornum skammti og mikil þörf er á lesefni á einföldu máli fyrir yndislestur. Þess vegna finnst mér mikilvægt að sem flestir viti að þessar bækur eru til.