Fara í efni
Íþróttir

Frábær sigur hjá Þór/KA – sætið tryggt!

Leikmenn Þórs/KA höfðu sannarlega ástæðu til að fagna í leikslok! Myndir: Haraldur Ingólfsson.

Stelpurnar í Þór/KA mættu til leiks gegn Víkingi í Fossvoginum í kvöld með það að markmiði að vinna þennan síðasta leik tímabilsins og tryggja sæti sitt í efstu deild í knattspyrnu. Í þessari lokaumferð var Þór/KA í baráttu við Víking og Val um að halda sætinu í deildinni og ljóst var að aðeins eitt þessara liða yrði áfram í efstu deild á næsta ári en hin tvö myndu falla. Eftir mikla dramatík og spennu í leikjum kvöldins fór svo að Þór/KA vann Víking 2:0 og tryggði sér áframhaldandi veru í efstu deild en Víkingur og Valur féllu.

Fyrir lokaumferðina var staðan þannig í úrslitakeppni neðri hluta efstu deildar kvenna að Fram var með 26 stig og var hólpið. Þór/KA og Víkingur höfðu 22 stig og Valur 21 stig. Með því að vinna Víking myndi Þór/KA halda sæti sínu, óháð úrslitum í leik Fram og Vals. Jafntefli gæti dugað Þór/KA, ef Valur ynni ekki sinn leik. Víkingur gat sömuleiðis tryggt sæti í efstu deild með því að vinna Þór/KA og Valur átti möguleika á að halda sætinu ef liðið ynni Fram og Víkingur og Þór/KA gerðu jafntefli.

Fyrirliðinn Arna Sif Ásgrímsdóttir var sem fyrr stærsti steinninn í varnarmúr Þórs/KA þegar liðið vann Víking 2:0 á útivelli og tryggði þar með sæti sitt í efstu deild kvenna. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Bæði lið vildu og þurftu sigur

Það var því mikið undir í leik Víkings og Þórs/KA og bæði lið vildu sigur. Fyrri hálfleikur var enda nánast stál í stál, hvorugt liðið náði afgerandi tökum á leiknum og þótt Víkingur væri meira með boltann gaf Þór/KA engin færi á sér. Eftir erfiða byrjun á mótinu hefur varnarleikur liðsins stökkbreyst til hins betra seinni hluta sumars og hinum liðunum í deildinni hefur lítið gengið að skapa sér færi gegn þessum skipulagða varnarmúr.

Staðan í leikhléi var markalaus og sömuleiðis var markalaust í viðureign Fram og Vals. Þessi staða þýddi að Þór/KA var ennþá efst þessara þriggja liða og Víkingur og Valur í fallsætunum.

Valur kemst yfir – Þór/KA niður í fallsæti

Eftir um kortersleik í seinni hálfleik komust Valskonur yfir á móti Fram. Þá var staðan orðin gjörbreytt – Valsarar voru hólpnir en bæði Víkingur og Þór/KA á leiðinni niður, ef þetta yrði lokastaðan. Og fjölmargir stuðningsmenn Þórs/KA á Víkingsvelli gripu öndina á lofti fimm mínútum síðar þegar Karen Hulda Hrafnsdóttir virtist fá boltann í höndina innan vítateigs og þá er yfirleitt dæmd vítaspyrna. En í þetta sinn flautaði dómarinn ekki og þar slapp Þór/KA með skrekkinn. Nokkrum mínútum síðar átti Víkingurinn Bergþóra Sól Ásmundsdóttir þrumuskot utan vítateigs, sem Allie Augur í markinu setti fingurgómana í þannig boltinn fór í þverslá og yfir.

Þór/KA skorar – og kemst upp úr fallsæti í bili!

Tíminn leið þarna ógnarhratt, Lengjudeildin blasti við báðum liðum og mörgum fannst Víkingar meira að segja líklegri til að skora en Þór/KA. En á 75. mínútu átti Hildur Anna Birgisdóttir fyrirgjöf frá hægri inn í vítateig Víkinga og eftir nokkurt klafs í teignum datt boltinn niður rétt utan markteigs. María Dögg Jóhannesdóttir var ákveðnust allra, renndi sér á boltann og potaði honum í netið. Staðan orðin 1:0 fyrir Þór/KA og Valsarar þar með aftur komnir í fallsæti á þessum tímapunkti, þrátt fyrir að hafa nánast á sama tíma aukið forystu sína í viðureigninni við Fram í 2:0. Þór/KA var hólpið ef þær myndu halda út. Víkingsstelpur þurftu að skora tvö mörk ef þær ætluðu að halda sér uppi í deildinni.

Tíminn leið hægt – færi misnotað

Mínúturnar liðu núna mun hægar einhverra hluta vegna og spennan var að verða óbærileg. Víkingar reyndu að sækja en sem fyrr var lið Þórs/KA þétt fyrir og Allie hirti það sem kom nálægt markinu. Á 83. mínútu átti Hulda Ósk Jónsdóttir einn af sínum góðu sprettum á hægri kantinum, þvældist gegnum tvo varnarmenn og komst í gott færi í vítateig Víkings. Skotið með vinstri var hins vegar ekki eins laglegt og undirbúningurinn og boltinn fór fjarri markinu. Þarna fór gott færi forgörðum og stuðningsmenn supu hveljur – kæmi þetta í bakið á þeim? Myndi Víkingur jafna og fella þar með Þór/KA?

Svarið var nei. Aðeins mínútu síðar átti Margrét Árnadóttir frábæra sendingu inn fyrir Víkingsvörnina á Erin Flurey, sem tók á rás með boltann inn í vítateig Víkings og renndi boltanum snyrtilega framhjá Telmu Ívarsdóttur í markinu. Staðan orðin 2:0 fyrir Þór/KA og sennilega um 10 mínútur eftir af leiknum samtals. Þetta var líklega eini spretturinn sem Erin tók í leiknum, hún hefur verið að glíma við meiðsli og var eiginlega á hálfum hraða lengst af. En hún er með gott markanef og skapar alltaf hættu í framlínunni og kláraði þetta færi afskaplega vel.

Þór/KA hélt út til leiksloka

Síðustu mínúturnar virtust aldrei ætla að líða – Valur var ennþá yfir í sínum leik en meðan Þór/KA héldi forystunni þá skipti staðan í hinum leiknum engu máli. Víkingur reyndi að sækja en Þór/KA varðist og það var í raun ekki fyrr en á fjórðu mínútu uppbótartíma að Víkingur fékk færi sem eitthvað kvað að. Boltinn fór þá í stöngina á marki Þórs/KA en skömmu síðar var leikurinn flautaður af og leikmenn, liðsstjórn og stuðningsfólks Þórs/KA gátu loks leyft sér að fagna innilega. Sæti í efstu deild á næsta ári tryggt, eftir æsilega úrslitakeppni og spennutrylli í lokaumferðinni. Reykjavíkurliðin Víkingur og Valur féllu niður í Lengjudeildina og Valsarar féllu þar með úr efstu deild í fyrsta sinn, eftir að hafa leikið þar samfleytt í 50 ár.

Ökuferðirnar heim til Akureyrar eftir útileiki eru ekki alltaf skemmtilegar – en sú síðasta á þessu keppnistímabili hjá Þór/KA er líklega sú gleðilegasta!

Þór/KA: Alessandra Dorothy Augur – María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Lauren Adrienne Lapomarda – Hulda Ósk Jónsdóttir (Karen María Sigurgeirsdóttir 85.), Elizabeth Moore, Margrét Árnadóttir, Hildur Anna Birgisdóttir (Agnes Birta Stefánsdóttir 88.), Halla Bríet Kristjánsdóttir (Amalía Árnadóttir 59.) – Erin Flurey.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Lokastaðan í úrslitakeppni neðri hluta deildarinnar