Íþróttir
Kaflaskil í dag er Aron Einar kveður
16.11.2026 kl. 16:15
Aron Einar Gunnarsson á Laugardalsvelli í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Aron Einar Gunnarsson er í landsliðshópi Íslands í knattspyrnu í síðasta sinn í dag og jafnar mögulega landsleikjamet annars Akureyrings, Birkis Bjarnasonar. Birkir tók þátt í 113 leikjum með A-landsliðinu en Aron á 112 leiki að baki.
Leikur Íslands og Lúxemborgar í Þjóðadeildinni hefst á Laugardalsvelli klukkan 17.00 og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport. Aron, sem hefur langoftast allra verið fyrirliði landsliðsins, byrjar á varamannabekknum eins og vitað var en reikna verður með því að hann komi inn á í leiknum.
Víðir Sigurðsson fjallaði um landsliðsferil Arons Einars fyrir akureyri.net í september, eftir að Aron tilkynnti að landsliðsskórnir færu á hillunni að lokinni þessari leikjatörn í Þjóðadeildinni.
- Grein Víðis Sigurðssonar: